Í þættinum Um land allt á Sýn+ er Vettlingagerðin Vanda heimsótt. Þau Vilborg Stefánsdóttir og Jón Rúnar Jónsson stofnuðu fyrirtækið árið 2010. Vettlingaframleiðslan var áður á Suðurnesjum en upphaflega á Suðurlandi.
„Við bara ákváðum að kýla á það, stofna okkar eigið fyrirtæki. Þá vorum við í fæðingarorlofum og allskonar á milli starfa. Svo höfum við bara einhvern veginn haldið þessu alltaf áfram,“ segir Vilborg hér í sjónvarpsfrétt Sýnar þar sem sjá má prjónavélarnar að störfum:
Þau prjóna vinnuvettlinga. Vettlingagerðin er þó aukastarf hjá báðum. Vilborg er gæðastjóri hjá Ísfélaginu og Jón Rúnar er löggiltur fasteigna- og skipasali.
„Það kemur ekkert í staðinn fyrir íslenska ull í fatnaði á Íslandi. Það er bara staðreynd.
Bandið er búið til fyrir okkur hjá Ístex. Þetta er þrjátíu prósent ull og sjötíu prósent nælon. Þeir blanda þetta fyrir okkur. Það er bara slitsterkt garn og með þessum hlýindum frá ullinni,“ segir Vilborg.
Kaupendur eru einkum fólk í útivinnu.
„Bændur, byggingaverktakar og hestamenn,“ segir Jón Rúnar.
„Þetta er selt í hverri einustu búð á Suðurlandi. Þeir þekkja þetta alltaf, Sunnlendingar. Þeir eru tryggir viðskiptavinir. Þannig að þetta hefur alltaf einhvern veginn haldið sér í sölu,“ segir Vilborg.
Þau segjast prjóna um áttaþúsund pör á ári í mismunandi stærðum og gerðum.
„Við höfum líka verið að prjóna þunna vettlinga sem eru orðnir býsna vinsælir.“
Þetta er sannkallað fjölskyldufyrirtæki. Saman eiga þau þrjú börn og þrjú eldri og hafa börnin hjálpað til við vettlingagerðina.
„Já, öll okkar börn hafa verið liðtæk í að aðstoða okkur hérna í þessu áhugamáli. Og hún situr eftir hérna ein núna með vinnuna,“ segir Vilborg um leið og hún horfir brosandi á yngstu dótturina, tíu ára gamla, snyrta vettlingana.
Þátturinn um Þórshöfn var frumsýndur í gær, miðvikudag. Hann verður endursýndur á Sýn+ á sunnudag, klukkan 13:05. Þáttaröðina alla má nálgast hvenær sem er á streymisveitu Sýnar.
Hér má sjá meira um samfélagið á Þórshöfn: