Poindexter var að ganga yfir götu í Studio City-hverfi í Los Angeles á leið að sækja sér mat á föstudagsvköld þegar ekið var á hann. Poindexter var fluttur á spítali og átti að fara í skurðaðgerð vegna brotinna rifbeina fyrr í dag þegar hann lést sviplega. Bransamiðillinn Deadline greindi frá andláti Poindexter.
Lawrence Thomas Poindexter fæddist 16. desember 1960 í Dallas í Texas, sonur ljósa- og leikmyndahönnuðarins H.R. Poindexter og óperusöngkonunnar Sue Ann Poindexter. Hann hóf að leika í háskóla og kom þar fram í ýmsum sýningum á sviði.
Frumraun Poindexter á sviði var í sjónvarpsþáttunum A New Day in Eden (1982) og lék smáhlutverk í fjölmörgum þáttaseríum og kvikmyndum á níunda áratugnum. Á þeim tíma fékk hann einnig föst hlutverk í sápuóperunum Santa Barbara (1984) og Days of Our Lives (1986).
Hann var áfram afkastamikill út tíunda áratuginn og fram til ársins 2020, sérstaklega sem gestaleikari í ýmsum vinsælum glæpaþáttum og gamanseríum. Kvikmyndaleikur Poindexter var ekki eins umfangsmikill og lék hann í hinum ýmsu B- og C-myndum en fór þó með ágætis rullu í hasarmyndinni S.W.A.T (2005).
Samhliða leiklistinni starfaði Poindexter einnig við framleiðslu á sviði og við leikaraval. Þá var hann aðalsöngvari kántrísveitarinnar The High Lonesome á tíunda áratugnum og gáfu þeir út plötuna Feel Free To Do So árið 1995.
Poindexter lætur eftir sig eiginkonu, Carol Kritzer sem starfaði við leikaraval, og tvo syni.