Gunnar Salvarsson, fyrrverandi fréttamaður og dagskrárgerðarmaður, telur að Ingvar Þóroddsson eigi að segja af sér þingmennsku. Hann hafi ekkert umboð til þess að sitja á Alþingi undir merkjum Sjálfstæðisflokksins.„Ingvari er frjálst að ganga í Sjálfstæðisflokkinn. Vilji hann sitja á Alþingi fyrir þann flokk finnst mér eðlilegt að hann biðji kjósendur um umboð til þess. Þeir eiga að fá að svara við kjörborðið,“ segir Gunnar í aðsendri grein á Vísi.
Telur að Ingvar eigi að segja af sér þingmennsku