Hveitiskandall í Dan­mörku teygir sig til Ís­lands - Vísir

Hveitiskandall í Dan­mörku teygir sig til Ís­lands - Vísir

Hveitiskandall í Dan­mörku teygir sig til Ís­lands - Vísir

Eins og Vísir greindi frá í gær hefur umfangsmikið mengunarmál vakið athygli í Danmörku eftir að rottur, mýs, dýraskítur, dauð dýr,  skemmt korn, mygla og leifar af olíu fundust í geymslum Danish Agro haustið 2025.

Hveitiframleiðandinn Valsemøllen, sem fékk korn frá Danish Agro, tilkynnti í gær um innköllun á hveiti undir sex vörumerkjum vegna málsins, þar á meðal First Price. Ástæðan er að danska matvælaeftirlitið telur ekki hægt að útiloka mögulega heilsufarsáhættu vegna sveppaeiturefna.

Tvær framleiðslulotur af mengaða hveitinu seldar hér

Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, staðfestir að tvær framleiðslulotur af mögulega menguðu First Price-hveiti  í tveggja kílóa pakkningum hafi verið selt í verslunum keðjunnar.

Um er að ræða hveiti með best fyrir dagsetningunum 1. september 2026 og 15. september 2026. Alls voru 1.200 neytendapakkningar af umræddu hveiti seldar í Krónunni og síðast í janúar á þessu ári.

„Dagrofa hafði samband við Krónuna í gærkvöldi vegna þessa máls en þar kom fram að Valsemøllen væri að innkalla tvær tegundir af hveiti, þar með talið First Price hveiti. Málið fór þá strax í ferli hjá okkur. Það er gert sem varúðarráðstöfun þar sem það er möguleg heilsufarsáhætta af vörunni,“ segir Guðrún.

Meðal þess sem sást í eftirliti danska matvælaeftirlitsins voru lifandi dýr eins og þessi kanína. Vísir

Upplýsingarnar höfðu ekki náð til hennar þegar fréttastofa ræddi við hana fyrr í morgun. Hún segir að gæðastjórinn sinn hafi þó verið upplýstur strax í gærkvöldi og þá hafi verið gengið í málið. 

Guðrún segir að um sé að ræða um tólf hundruð pakkningar af umræddu hveiti. 

Rekja má hveitið til Danish Agro

Guðrún segir aðfangakeðjuna í þessu tilfelli nokkuð langa. Kornið hafi komið frá Danish Agro, farið þaðan til Valsemøllen sem framleiddi hveitið, síðan í gegnum Dagrofa og loks til Krónunnar.

„Þegar svona keðja nær yfir mörg fyrirtæki og fleiri en eitt land er sérstaklega mikilvægt að rekjanleiki og upplýsingaflæði milli allra aðila virki hratt og örugglega,“ segir Guðrún.

Danska matvælaeftirlitið hefur viðurkennt að mistök hafi verið gerð þegar ákveðið var á sínum tíma að krefjast ekki innköllunar á hveiti frá Valsemøllen án þess að afla fyrst óháðs áhættumats.

Dýrahræ í kornbirgðum, frá eftirliti danska matvælaeftirlitsins. Vísir

Guðrún segir að Krónan hafi sent út tilkynningu vegna málsins til MAST. 

„Við fengum þá hérna ráðleggingu að senda þetta beint á MAST og þau munu svo senda  tilkynningu um innköllun út. En mér skilst að það séu einhverjir fleiri sem eru í þessu ferli hjá þeim líka. Þetta er stór framleiðandi í Danmörku þannig að það eru eflaust margir sem verða fyrir einhverjum áhrifum af því,“ segir hún.

Guðrún segist ekki vera upplýst um hvaða aðrir íslenskir söluaðilar hafi fengið hveitið til sín. 

Fyrirspurnum síðustu daga ósvarað

Fréttastofa hefur fylgst með málinu í Danmörku frá því á þriðjudag og sendi fyrirspurn þann dag á MAST um hvort stofnunin hefði fengið tilkynningu um að eitthvað af umræddu hveiti hefði borist til Íslands. Í svari stofnunarinnar sem barst í morgun kom eftirfarandi fram:

 Við getum upplýst að almennt ef innköllun nær til Íslands þá berast slíkar upplýsingar Matvælastofnun í gegnum hraðviðvörunarkerfi Evrópu f. matvæli og fóður (RASFF). Engin tilkynning um þetta mál hefur borist þar í gegn ennþá en kerfið og tilkynningar eru í stöðugri vöktun dag hvern. 

Vísað var á heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur í svari MAST í morgun. Á fimmta tímanum hafði enn ekki borist innköllun frá stofnuninni.

Fréttastofa var í sambandi við danska matvælaeftirlitið í gær og óskaði eftir svörum um hvort eitthvað af mengaða hveitinu hefði borist til söluaðila á Íslandi. Ekki hafa borist svör þaðan vegna málsins. 

Þá var send fyrirspurn á fyrirtækið Valsemøllen á þriðjudag vegna málsins sem vísaði á íslenskan birgja í dag sem hafði ekki sent svar nú á fimmta tímanum. 

Bagalegt að upplýsingar hafi ekki borist fyrr

Guðrún segir bagalegt að ekki hafi borist fyrr upplýsingar til þeirra vegna málsins frá Danmörku. 

„Það er auðvitað bagalegt að það sé staðan. Dönsk matvælayfirvöld hafa viðurkennt að mistök hafa átt sér stað í fyrri meðferð málsins. Þeir tala um að þeir hafi ekki aflað óháðs áhættumats áður en þeir ákváðu að krefjast ekki innköllunar og mér finnst bagalegt að þetta fari svona. Eftirliti úti gerði s.s. nýtt mat og þá voru tilteknar lotur innkallaðar í Danmörku og í kjölfarið förum við af stað og bregðumst við því. En sem betur fer hafa ekki komið upp nein mál sem eru alvarleg þannig að við bara vonum að það stafi ekki hætta af þessu,“ segir Guðrún.

Ekki hægt að útiloka heilsufarsáhættu

Innköllunin er varúðarráðstöfun þar sem ekki er hægt að útiloka heilsufarsáhættu. Neytendum sem eiga First Price-hveiti í tveggja kílóa pakkningum með umræddum best-fyrir-dagsetningum er ráðlagt að farga því.

Mynd frá danska matvælaeftirlitinu frá hveitibirgjanum Danish Acro.Vísir

Guðrún segir Krónuna ætla að fylgja málinu náið eftir í samstarfi við Dagrofa og tryggja að rétt verði brugðist við.

Fréttin hefur verið uppfærð.

#danmörku #hveitiskandall #sig #teygir #til


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262965494d/hveitiskandall-i-danmorku-teygir-sig-til-islands

📰 Aðrar fréttir

Svona langan tíma tekur að hlaða niður GTA VI á Íslandi – Sláandi munur á löndum
📅 20.11.2026 👁️ 0
Svona langan tíma tekur að hlaða niður GTA VI á Íslandi – Sláandi munur á löndum
Það tekur að meðaltali 2 klukkustundir og 3 mínutur að hlaða niður tölvuleiknum GTA VI á Íslandi. Í sjö löndum er niðurhalið hraðara.Þetta kemur fram ...
Réttarhöld framundan í Straumsvíkurmálinu: Hverjir eru sakborningarnir?
📅 20.11.2026 👁️ 0
Réttarhöld framundan í Straumsvíkurmálinu: Hverjir eru sakborningarnir?
Aðalmeðferð í svokölluðu Straumvíkurmáli hefst við Héraðsdóm Reykjaness þann 3. desember næstkomandi og stendur til 8. desember. Um er að ræða stærsta...
Rúss­nesk stýri­flaug sprakk í Pól­landi - Vísir
📅 20.11.2026 👁️ 0
Rúss­nesk stýri­flaug sprakk í Pól­landi - Vísir
Samkvæmt umfjöllun breska ríkisútvarpsins hlaut enginn skaða af og ekki hefur verið tilkynnt um tjón. Pólsk stjórnvöld lýstu atvikinu sem ögrun. Rússa...
Vopnasali vildi frekar vera í fangelsi hér en í Króatíu - Vísir
📅 20.11.2026 👁️ 0
Vopnasali vildi frekar vera í fangelsi hér en í Króatíu - Vísir
Handtökuskipunin var gefin út 30. júlí af héraðsdómstóli í Króatíu. Samkvæmt henni var maðurinn sakfelldur með dómi 14. mars 2025 fyrir að afla, flytj...
Leikari og rithöfundur kærðir fyrir hópnauðgun
📅 20.11.2026 👁️ 0
Leikari og rithöfundur kærðir fyrir hópnauðgun
Frönsk lögregluyfirvöld hafa til rannsóknar nauðgunar- og ofbeldisbrotakæru leikkonu á hendur þeim Gerard Depardieu og Michel Houellebecq. Hún segir t...
Dwain Hall found guilty of kidnapping and murdering Sonia Exelby
📅 20.11.2026 👁️ 0
Dwain Hall found guilty of kidnapping and murdering Sonia Exelby
Dwain Hall has been found guilty of the kidnap and first-degree murder of Sonia Exelby.
Vísa rússneskum diplómata úr landi
📅 20.11.2026 👁️ 0
Vísa rússneskum diplómata úr landi
Utanríkisráðuneyti Danmerkur ætlar að reka einn rússneskan diplómata úr landi vegna gruns um að rússneska leyniþjónustan hafi ráðið tvo Dani til að my...
Svarthöfði skrifar: Löglegt en siðlaust – sannleikurinn um Sjálfstæðisflokkinn kom samt fram
📅 20.11.2026 👁️ 2
Svarthöfði skrifar: Löglegt en siðlaust – sannleikurinn um Sjálfstæðisflokkinn kom samt fram
Svarthöfði er eldri en tvævetur og hefur fylgst af áhuga með pólitík í áratugi. Hvers vegna? Það er góð spurning, eins leiðinleg og pólitíkin getur or...
Kaufmann spyr hver hafi séð meint sönnunargögn gegn honum
📅 20.11.2026 👁️ 3
Kaufmann spyr hver hafi séð meint sönnunargögn gegn honum
Ivan Kaufmann, meirihlutaeigandi Vélfags, spyr hver hafi séð svokölluð sönnunargögn gegn honum. Í myndbandi sem hann birtir á Facebook í dag segist ha...
Mat­seðlar Kokka­lands­liðsins af­hjúpaðir – ís­lenskt hrá­efni í aðal­hlut­verki - Vísir
📅 20.11.2026 👁️ 2
Mat­seðlar Kokka­lands­liðsins af­hjúpaðir – ís­lenskt hrá­efni í aðal­hlut­verki - Vísir
Kokkalandslið Íslands hélt til Lúxemborgar í gær, fimmtudaginn 19. nóvember, þar sem liðið tekur þátt í heimsmeistaramótinu í matreiðslu, Culinary Wor...
Rannsókn á meintu barnabrúðkaupi á viðkvæmu stigi
📅 20.11.2026 👁️ 3
Rannsókn á meintu barnabrúðkaupi á viðkvæmu stigi
Rannsókn Lögreglunnar á Suðurnesjum á máli barns sem grunur er um að hafi verið þvingað í hjónaband er á viðkvæmu stigi. Lögregla veitir ekki upplýsin...
Öskraði af sárs­auka við af­tökuna - Vísir
📅 20.11.2026 👁️ 2
Öskraði af sárs­auka við af­tökuna - Vísir
Dennes, sem var sjötugur, var dæmdur til dauða eftir að hafa orðið Janos Szucs demantssmyglara að bana árið 1996. Szucs var skotinn nokkrum sinnum. Af...
Faisal Islam: This cost-cutting UK-EU deal doesn't mean lower prices will follow
📅 20.11.2026 👁️ 3
Faisal Islam: This cost-cutting UK-EU deal doesn't mean lower prices will follow
The trade deal is unlikely lower food prices for shoppers, but should boost the economy more than other post-Brexit agreements.
Níu ára fangelsi fyrir inn­flutning á tugum kílóa af kókaíni - Vísir
📅 20.11.2026 👁️ 2
Níu ára fangelsi fyrir inn­flutning á tugum kílóa af kókaíni - Vísir
Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Austurlands á þriðjudag en þar kemur fram að tollverðir hafi stöðvað Katsanos við komu hans til landsins þann 27...
Slökkt á flugöryggisljósum á byggingarkrana við Skúlagötu um tíma
📅 20.11.2026 👁️ 3
Slökkt á flugöryggisljósum á byggingarkrana við Skúlagötu um tíma
Slökkt var á flugöryggisljósum á byggingarkrana við hótelturn Radisson Red við Skúlagötu um tíma eftir að framkvæmdum þar var hætt. Ekki liggur fyrir ...
Fréttir af munn­mökum í barna­laug komu Stein­þóri í opna skjöldu - Vísir
📅 20.11.2026 👁️ 2
Fréttir af munn­mökum í barna­laug komu Stein­þóri í opna skjöldu - Vísir
Eins og Vísir greindi frá í vikunni hefur héraðssaksóknari nú ákært tvo menn fyrir kynferðislegar athafnir þeirra í barnalaug Laugardalslaugar.  Alls ...
Two arrested after 1,200 laughing gas cartridges seized in Las Verónicas
📅 20.11.2026 👁️ 2
Two arrested after 1,200 laughing gas cartridges seized in Las Verónicas
The owner of a pub in Las Verónicas, Playa de las Américas, and a member of staff have been arrested on suspicion of selling nitrous oxide, commonly k...
Baugur Bjólfs hlaut alþjóðleg verðlaun
📅 20.11.2026 👁️ 2
Baugur Bjólfs hlaut alþjóðleg verðlaun
Síðastliðið mánudagskvöld var veitt við athöfn í Konunglegu bresku óperunni í London viðurkenning fyrir hönnun Baugs Bjólfs, útsýnispalls við Seyðisfj...
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir: Viðreisn eins og nýsköpunarfyrirtæki sem vex mjög hratt
📅 20.11.2026 👁️ 2
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir: Viðreisn eins og nýsköpunarfyrirtæki sem vex mjög hratt
Það er mikill munur á því annars vegar hvernig Jón Gnarr kvaddi þingflokk Viðreisnar og hins vegar hvernig Ingvar Þóroddsson kvaddi. Jón kom og ræddi ...
Sagan um hina frægu veðurvél - Vísir
📅 20.11.2026 👁️ 2
Sagan um hina frægu veðurvél - Vísir
Öll þáttaröðin er nú þegar komin inn á Sýn+ en í þáttunum opnar Egill tímahylkið og skoðar hvað hefur breyst í íslensku skemmtanalífi, matarmenningu, ...
Jakob Bjarnar kemur fjölmiðlum til varnar: „Ég veit ekki hvort þessari þjóð er hreinlega viðbjargandi“
📅 20.11.2026 👁️ 2
Jakob Bjarnar kemur fjölmiðlum til varnar: „Ég veit ekki hvort þessari þjóð er hreinlega viðbjargandi“
„Enn og aftur eru fjölmiðlar "vondi kallinn" nú í máli sem varðar Hagaskóla og kennara þar sem gátu ekki hamið holdsins lystisemdir á skólatíma. Þeir ...
Arnrún María og Bergið headspace fá viðurkenningu Barnaheilla 2026
📅 20.11.2026 👁️ 3
Arnrún María og Bergið headspace fá viðurkenningu Barnaheilla 2026
Barnaheill veittu í dag árlega viðurkenningu sína fyrir sérstakt framlag í þágu barna og mannréttinda þeirra. Þetta er í 25. sinn sem samtökin heiðra ...
Öryggis­verðir Land­spítalans tóku niður stóran transfána - Vísir
📅 20.11.2026 👁️ 2
Öryggis­verðir Land­spítalans tóku niður stóran transfána - Vísir
Ríkisútvarpið greinir frá málinu og birtir mynd af fánanum, sem ætla má að sé tekin frá höfuðstöðvum ríkismiðilsins í Efstaleiti. Samkvæmt upplýsingum...
Hótaði að reka starfs­fólk yfir meintum GTA-leyfum - Vísir
📅 20.11.2026 👁️ 2
Hótaði að reka starfs­fólk yfir meintum GTA-leyfum - Vísir
Clancy og Crouch, sem er fyrrverandi knattspyrnumaður, ræddu Grand Theft Auto VI í nýjasta þætti sínum og hvatti Crouch eiginkonu sína til að deila sk...
Anti-migrant activist Daniel Thomas jailed for slashing migrant dinghy
📅 20.11.2026 👁️ 2
Anti-migrant activist Daniel Thomas jailed for slashing migrant dinghy
A judge called the anti-migrant activist a “publicity seeker” who disrupted the work of rescue crews.
How Sport Can Improve Everyday Life: The benefits of staying active at any age
📅 20.11.2026 👁️ 2
How Sport Can Improve Everyday Life: The benefits of staying active at any age
Nearly 31% of adults worldwide, about 1.8 billion people, were not meeting recommended activity levels in 2022. WHO currently advises adults to accumu...
Tveir Danir grunaðir um að hafa ætlað að myrða úkraínskan rappara
📅 20.11.2026 👁️ 2
Tveir Danir grunaðir um að hafa ætlað að myrða úkraínskan rappara
Danska lögreglan er með tvo menn í haldi sem grunaðir eru um að hafa ætlað að myrða úkraínska rapparann Kyivstoner. DR, danska ríkisútvarpið, greinir ...
Stórum trans fána flaggað af efstu hæð Landspítala
📅 20.11.2026 👁️ 2
Stórum trans fána flaggað af efstu hæð Landspítala
Stór trans fáni var hengdur fram af svölum á 14. hæð Landspítalans í Fossvogi síðdegis. Gjörningurinn var ekki á vegum spítalans.Samkvæmt upplýsingum ...
Þúsundir vefa liggja niðri vegna sérsniðinnar tölvuárásar - Vísir
📅 20.11.2026 👁️ 2
Þúsundir vefa liggja niðri vegna sérsniðinnar tölvuárásar - Vísir
Greint var frá því fyrr í morgun að 1984 ehf. stöðvaði tímabundið alla þjónustu sína vegna umfangsmikillar tölvuárásar. Mörður segist telja að árásin ...
Ert þú með puttann á púlsinum? Taktu fréttakviss vikunnar - RÚV.is
📅 20.11.2026 👁️ 2
Ert þú með puttann á púlsinum? Taktu fréttakviss vikunnar - RÚV.is
Hér eru tíu spurningar úr fréttum vikunnar. Veistu hvaða leikari leikur næst spæjarann James Bond, í hvaða flokk Ingvar Þóroddsson gekk og til hvaða A...
What we know about the latest Russian missile strikes on Ukraine
📅 20.11.2026 👁️ 2
What we know about the latest Russian missile strikes on Ukraine
What we know about the latest Russian missile strikes on Ukraine.
Talninga-Tómas á leið í dómara­sæti - Vísir
📅 20.11.2026 👁️ 3
Talninga-Tómas á leið í dómara­sæti - Vísir
Í tilkynningu á vef Stjórnarráðs Íslands segir að 4. september 2026 hafi dómsmálaráðuneytið auglýst tvö embætti héraðsdómara laus til umsóknar. Annars...
Holland kallar rússneska sendiherrann á sinn fund eftir árás við sendiráðið í Kænugarði
📅 20.11.2026 👁️ 3
Holland kallar rússneska sendiherrann á sinn fund eftir árás við sendiráðið í Kænugarði
Holland kallar rússneska sendiherrann á sinn fund eftir árás við sendiráðið í Kænugarði Fréttin20. nóvember 2026Erlent, ÚkraínustríðiðLeave a Comment ...
Depardieu og Houellebecq sakaðir um hóp­nauðgun við tökur - Vísir
📅 20.11.2026 👁️ 2
Depardieu og Houellebecq sakaðir um hóp­nauðgun við tökur - Vísir
Fram kemur í erlendum miðlum að franskir saksóknarar hafi staðfest í dag að hafin sé sakamálarannsókn á meintum brotum. Depardieu, 77 ára, er sakaður ...
„Ég fæ aldrei að spila GTA með strákunum“ - Vísir
📅 20.11.2026 👁️ 4
„Ég fæ aldrei að spila GTA með strákunum“ - Vísir
Á heimilum um allt land hafa farið fram samningaviðræður þar sem karlmenn, oftar en ekki, grátbiðja eiginkonur sínar um að fá að spila nýja tölvuleiki...
Ofbeldisalda í Ceuta eftir innrásina í sumar – Hnífa- og skotárásum fjölgar gríðarlega
📅 20.11.2026 👁️ 3
Ofbeldisalda í Ceuta eftir innrásina í sumar – Hnífa- og skotárásum fjölgar gríðarlega
Eftir innrásina í Ceuta í sumar fjölgaði skráðum málum vegna árása með hnífum og öðrum eggvopnum úr 23 í 268, og málum vegna árása með skotvopnum úr á...
Karlar eru líklegri en konur til að vera fátækir á Íslandi - „Fátt er jafn mikill gæðastimpill á samfélag og að sem fæstir líði skort“
📅 20.11.2026 👁️ 3
Karlar eru líklegri en konur til að vera fátækir á Íslandi - „Fátt er jafn mikill gæðastimpill á samfélag og að sem fæstir líði skort“
Um 34 þúsund manns eða 8,5 prósent landsmanna eru undir lágtekjumörkum samkvæmt nýrri greiningu Hagstofunnar á lífskjörum, karlar eru líklegri en konu...
Tómas Hrafn metinn hæfastur til dómarastarfa
📅 20.11.2026 👁️ 3
Tómas Hrafn metinn hæfastur til dómarastarfa
Tómas Hrafn Sveinsson, formaður umdæmisráðs Barnaverndar Reykjavíkur, hefur verið metinn hæfastur umsækjenda til að gegna dómaraembætti við Héraðsdóm ...
Segir eftir­lit Sam­göngu­stofu í molum - Vísir
📅 20.11.2026 👁️ 3
Segir eftir­lit Sam­göngu­stofu í molum - Vísir
Þráinn Jónsson, framkvæmdastjóri Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur, var í viðtali í Bítinu í morgun þar sem fram kom að hann telur eftirlit með plastbátum ...
Rússlandsher drap 8 í nótt – Meðal hörðustu árása, segir Zelenský
📅 20.11.2026 👁️ 3
Rússlandsher drap 8 í nótt – Meðal hörðustu árása, segir Zelenský
Rússlandsher drap átta manns, hið minnsta, í árásum á Úkraínu í nótt. Úkraínuforseti segir þetta einar mestu árásir Rússa síðan þeir hófu innrásarstrí...
Flóðhesturinn Fíóna öll eftir að hafa étið hatt
📅 20.11.2026 👁️ 3
Flóðhesturinn Fíóna öll eftir að hafa étið hatt
Fólk með blóm hefur drifið að dýragarðinum í Cincinnati í Bandaríkjunum síðan í gær eftir að tilkynnt var að flóðhesturinn Fíóna væri dauð. Einn gestu...
Landhelgisgæslan getur ekki sótt slasaða sjómenn
📅 20.11.2026 👁️ 4
Landhelgisgæslan getur ekki sótt slasaða sjómenn
Fyrir tólf dögum kom upp bilun í hífingaspili einnar þyrlu Landhelgisgæslunnar.Í framhaldi var ákveðið að nota ekki sigbúnað neinnar þyrlu gæslunnar á...
Anthropic shares fall a day after blockbuster IPO
📅 20.11.2026 👁️ 4
Anthropic shares fall a day after blockbuster IPO
Other tech companies have also taken a hit as share markets broadly slump.
Eigendur Valaskjálfar enn tilbúnir til að semja um leiguverð
📅 20.11.2026 👁️ 3
Eigendur Valaskjálfar enn tilbúnir til að semja um leiguverð
Eigandi Valaskjálfar á Egilsstöðum segir að möguleiki á að sveitarfélagið leigði sal hússins hafi ekki verið útræddur. Endanlegt leiguverð hafi aldrei...
Vera nýr framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar
📅 20.11.2026 👁️ 3
Vera nýr framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar
Stjórn Fjölmiðlanefndar hefur ráðið Veru Sveinbjörnsdóttur í starf framkvæmdastjóra stofnunarinnar. Hún tekur við starfinu á næstu vikum. Þetta kemur ...
HIV Ísland vilja afglæpavæða vændi – „Hefur neikvæð áhrif á heilsu beggja hópa“
📅 20.11.2026 👁️ 4
HIV Ísland vilja afglæpavæða vændi – „Hefur neikvæð áhrif á heilsu beggja hópa“
Samtökin HIV Ísland eru á móti frumvarpi dómsmálaráðherra um harðari refsingar í vændismálum. Samtökin vilja afglæpavæða vændi og segja refsingar hafa...
Léttist um 15 kg í króatísku fangelsi og deildi 8-9 fm klefa með sjö mönnum
📅 20.11.2026 👁️ 3
Léttist um 15 kg í króatísku fangelsi og deildi 8-9 fm klefa með sjö mönnum
Króati sem situr í fangelsi hér á landi reyndi að komast undan framsali til Króatíu á grundvelli þess að þar biði hans fangelsisvist sem uppfyllti ekk...
Zelensky sendir ESB reikning upp á 115 milljarða evra
📅 20.11.2026 👁️ 4
Zelensky sendir ESB reikning upp á 115 milljarða evra
Zelensky sendir ESB reikning upp á 115 milljarða evra Fréttin20. nóvember 2026Erlent, Evrópusambandið, ÚkraínustríðiðLeave a Comment Úkraína býst við ...
Firefighters abseil down cliff to rescue trapped dog in Lanzarote
📅 20.11.2026 👁️ 4
Firefighters abseil down cliff to rescue trapped dog in Lanzarote
Firefighters rescued a dog trapped on a hard-to-reach section of the Famara cliffs in Lanzarote yesterday (Thursday). The dog was brought to safety an...
Tveir reknir vegna þáttanna Allir elska Rasmus
📅 20.11.2026 👁️ 4
Tveir reknir vegna þáttanna Allir elska Rasmus
Tveir stjórnendur á dönsku sjónvarpsstöðinni TV2 voru látnir fara í morgun vegna framleiðslu þáttanna Allir elska Rasmus. Þetta kemur fram í fréttatil...