Þetta kemur fram í tölvubréfi starfandi skólastjóra Hagaskóla til foreldra barna við skólann.
„Skólinn harmar að þetta atvik hafi átt sér stað og mun vinna að úrlausn þessa viðkvæma máls samkvæmt verkferlum. Eðli málsins samkvæmt verður ekki farið ofan í málsatvik heldur verður málið unnið áfram með hlutaðeigandi og mannauðsþjónustu skóla- og frístundasviðs. Boðið verður upp á samtal fyrir þau börn sem urðu vitni að atvikinu ef þau eða foreldrar þeirra telja þörf á og geta þau þá haft samband við mig,“ segir í bréfinu, sem skólastjórinn undirritar.
Áður hafði skólastjórinn greint foreldrum frá því að sést hefði til tveggja starfsmanna að kyssast bak við luktar dyr en miðað við nýtt tölvubréf hans virðast samskipti fólksins hafa verið meiri en kossaflens.
Á mynd sem Vísir hefur undir höndum, og reikna má með að skólastjórnendur hafi einnig, sjást útlínur starfsfólksins greinilega í gegnum rúðu sem er að stórum hluta sandblásin. Fólkið þekkist því ekki en neðri hluti glersins, sem er ósandblásinn, sýnir svartan sófa. Karlinn sést svo sitjandi eða liggjandi á sófanum en konan í uppréttri stöðu ofan á karlinum.