Í dag fór fram tímamótafundur forseta Bandaríkjanna, Kína og Rússlands. Xi Jinping Kínaforseti tók á móti Donald Trump Bandaríkjaforseta og Vladimír Pútín Rússlandsforseta í Shenzen í Kína en þetta er í fyrsta sinn sem leiðtogarnir hittast saman. Í ávörpum sínum tóku þeir allir fram að fundurinn væri sögulegur.Baldur Þórhallsson prófessor í stjórnmálafræði fer ítarlega yfir þýðingu fundarins í færslu á Facebook. Þar segir hann að þessi fundur sé liður í tilraun þeirra Trump, Xi og Pútíns að breyta skipun heimsmála.
„Þeir ætla sér að ráða skipan heimsmála“