Nokkuð fast var sótt að Einari Geir Þorsteinssyni bæjarfulltrúa Miðflokksins í Hafnarfirði á bæjarstjórnarfundi í gær þegar hann lagði fram tillögu um að bærinn myndi móta sér málstefnu og nota hefðbundið íslenskt mál í öllum tilkynningum og öðru efni sem bærinn sendir frá sér. Lagði Einar Geir sérstaka áherslu á að bærinn myndi leggja af notkun á kynhlutlausu máli.
Fast sótt að oddvita Miðflokksins í Hafnarfirði í umræðu um íslenskt mál - „Mér er nákvæmlega sama hvort við erum öll hérna eða allir“