Mál Héraðssaksóknara á hendur manninum var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness fyrir luktum dyrum í gær. Því liggur afstaða hans til sakarefnisins ekki fyrir.
Í ákæru á hendur manninum segir að hann hafi að kvöldi fimmtudags eða aðfaranótt föstudags í júní árið 2024 án samþykkis og með því að beita ofbeldi og ólögmætri nauðung haft samræði og önnur kynferðismök við stúlkuna. Hann hafi haldið höndum hennar og haft við hana samræði og látið hana veita honum munnmök, allt með þeim afleiðingum að hún hlaut afrifu við leggangaop.
Í dóminum kemur aldur fólksins ekki fram en samkvæmt heimildum Vísis var stúlkan sextán ára og maðurinn tvítugur þegar atvik málsins urðu.
Í ákærunni segir að þess sé krafist að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar, auk þess að stúlkan krefji hann um miskabætur að fjárhæð 3,5 milljónum króna.