Eins og Vísir greindi frá í gær hefur umfangsmikið mengunarmál vakið athygli í Danmörku eftir að rottur, mýs, dýradrit og skemmt korn fundust í geymslum Danish Agro haustið 2025.
Hveitiframleiðandinn Valsemøllen, sem fékk korn frá Danish Agro, tilkynnti í gær um innköllun á hveiti undir sex vörumerkjum vegna málsins, þar á meðal First Price. Ástæðan er að danska matvælaeftirlitið telur ekki hægt að útiloka mögulega heilsufarsáhættu vegna sveppaeiturefna.
Tvær framleiðslulotur seldar hér
Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, staðfestir í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu að tvær framleiðslulotur af First Price-hveiti í tveggja kílóa pakkningum hafi verið seldar í verslunum keðjunnar.
Um er að ræða hveiti með best fyrir-dagsetningunum 1. september 2026 og 15. september 2026. Hveitið var selt í takmörkuðu magni og síðast í janúar á þessu ári.
„Dagrofa hafði samband við Krónuna í gærkvöldi vegna þessa máls en þar kom fram að Valsemöllen væri að innkalla tvær tegundir af hveiti, þar með talið First Price hveiti. Málið fór þá strax í ferli hjá okkur,“ segir Guðrún.
Upplýsingarnar höfðu ekki náð til hennar þegar fréttastofa ræddi við hana fyrr í morgun. Hún segir að gæðastjórinn sinn hafi þó verið upplýstur strax í gærkvöldi og þá hafi verið gengið í málið.
Rekja má hveitið til Danish Agro
Guðrún segir aðfangakeðjuna í þessu tilfelli nokkuð langa. Kornið hafi komið frá Danish Agro, farið þaðan til Valsemøllen sem framleiddi hveitið, síðan í gegnum Dagrofa og loks til Krónunnar.
„Þegar svona keðja nær yfir mörg fyrirtæki og fleiri en eitt land er sérstaklega mikilvægt að rekjanleiki og upplýsingaflæði milli allra aðila virki hratt og örugglega,“ segir Guðrún.
Danska matvælaeftirlitið hefur viðurkennt að mistök hafi verið gerð þegar ákveðið var á sínum tíma að krefjast ekki innköllunar á hveiti frá Valsemøllen án þess að afla fyrst óháðs áhættumats.
Ekki hægt að útiloka heilsufarsáhættu
Innköllunin er varúðarráðstöfun þar sem ekki er hægt að útiloka heilsufarsáhættu. Neytendum sem eiga First Price-hveiti í tveggja kílóa pakkningum með umræddum best-fyrir-dagsetningum er ráðlagt að farga því.
Guðrún segir Krónuna ætla að fylgja málinu náið eftir í samstarfi við Dagrofa og tryggja að rétt verði brugðist við.