Grænlensk grunnskólabarn hefja í dag nám í dönsku og ensku strax á fyrsta ári grunnskólans, samhliða grænlensku, stærðfræði, samfélagsfræði og fleirum.
Samkvæmt nýsamþykktum lögum verður ekkert nám í dönsku og ensku fyrr en í fjórða bekk. Á móti verður kennslustundum í grænlensku og stærðfræði fjölgað í fyrsta, öðrum og þriðja bekk.
Í umfjöllun grænlenska ríkisútvarpsins kemur fram að markmiðið með breytingunum sé að auka færni nemenda í grænlensku máli og bæta árangur þeirra í stærðfræði.
Samhliða þessu verður skóladögum á ári fækkað. Hingað til hafa þeir verið á bilinu 200 og 240 en verða héðan frá 180 til 200. Lögin taka gildi frá og með skólaárinu 2027-2028.