Hátíðin stendur í fimm daga og teygir sig víða um Vestfirði. Stórtónleikar á Ísafjarðarhöfn föstudaginn 6. og laugardaginn 7. ágúst eru aðalviðburðurinn, en minni viðburðir verða hina dagana. Fleiri listamenn bætast við þegar nær dregur miðasölu. Auk þess verða viðburðir utan hátíðarsvæðisins við höfnina kynntir á næstu mánuðum.
Hátíð með Vestfirðingum
Samkvæmt fréttatilkynningu er hugmyndin að gestir upplifi Vestfirði sem heild en ekki aðeins eitt tónleikasvæði. Tónlist í einstöku umhverfi, viðburðir í bæjunum og samstarf við heimafólk eigi að vera í fyrirrúmi. Kaleo stendur að hátíðinni og kemur fram á henni.
Ósk Gunnarsdóttir er framkvæmdastjóri Bergmáls. Hún hefur unnið með Kaleo að Vori í Vaglaskógi síðustu tvö ár og var aðstoðarframkvæmdastjóri Bergmáls á Þingvöllum í ár.
„Það er mér mikill heiður að leiða Bergmál á Vestfjörðum. Ég á ættir að rekja til Vestfjarða og því stendur þetta verkefni hjarta mínu sérstaklega nærri,“ segir Ósk í tilkynningunni.
„Við viljum búa til þessa hátíð með Vestfirðingum, ekki bara fyrir þá. Hver bær og hvert þorp á sína sögu og okkur langar að hún fái að hljóma á Bergmáli. Ef þú lumar á hugmynd að viðburði, hvort sem það er brauðtertuboð í félagsheimilinu eða uppistand inni í kirkju, þá viljum við endilega heyra frá þér á bergmal@bergmal.is. Við tökum öllum hugmyndum fagnandi. Til að þetta takist þurfum við stuðning alls samfélagsins og allar hendur eru velkomnar, hafðu bara samband,“ segir hún.
„Stemningin á síðustu hátíðum situr enn í okkur og nú förum við með hana vestur og dreifum okkur yfir fleiri daga og fleiri bæi,“ er haft eftir meðlimum Kaleo í tilkynningunni.
„Stundum eru engin orð, en fjöllin hafa vakað og beðið eftir okkur,“ segir Bubbi Morthens.
Opnunartónleikar við Dynjanda
Hátíðin hefst með opnunartónleikum við Dynjanda. Miðarnir á þá eru örfáir og verða ekki seldir. Þess í stað verður dregið úr hópi miðahafa á Bergmál, og fer útdrátturinn fram 24. desember.
Forsala hefst þriðjudaginn 1. desember klukkan 10:00 fyrir þá sem skrá sig á póstlista á bergmal.is. Almenn sala hefst fimmtudaginn 3. desember á sama tíma. Alls verða 8.000 miðar í boði og kostar miðinn 24.900 krónur. Miðasalan fer fram á tix.is.
Að sögn skipuleggjenda er unnið með sveitarfélögunum að stækkun tjaldsvæða og aðgerðaáætlun um gistingu svo allir gestir komist fyrir. Ný svæði verða opnuð og gestir geta dreift sér um bæina í kring. Upplýsingar um gistingu og tjaldsvæði birtast á bergmal.is frá 3. desember, og hægt verður að bóka stæði þegar nær dregur hátíð.
Þá ætlar Bergmál að senda póstkort á öll heimili landsins „svo enginn missi af því sem er í vændum fyrir vestan“.