Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu háskólans. Þar segir að upphaflega hafi umsóknarfrestur verið til 15. október.
„Fregnir hafa hins vegar borist af fjöldauppsögnum á síðustu vikum og auknu atvinnuleysi í íslensku samfélagi. Til að bregðast við samþykkti háskólaráð Háskóla Íslands ályktun á síðasta fundi sínum þar sem rektor var falið að heimila undanþágu frá hefðbundnum umsóknarfrestum fyrir þær deildir sem það kjósa og taka inn nemendur á vormisseri,“ segir í tilkynningunni.
Með þessu vill skólinn sýna samfélagslega ábyrgð og fjölga tækifærum fyrir fólk. Í október síðastliðnum var 281 einum sagt upp í hópuppsögnum og mældist 5,7 prósent atvinnuleysi í september.
Umsóknarfresturinn er til 30. nóvember en eru ekki allar námsleiðir í boði. Framboðið nær einungis til ákveðinna námsleiða í framhaldsnámi.