Þetta kemur fram í svari frá Sjúkratryggingum við fyrirspurn fréttastofu. Spurt var hversu mörg börn og fullorðnir hefðu verið send til læknismeðferðar erlendis á ári hverju síðustu fimm ár og hver kostnaðurinn við slíkar aðgerðir væri.
Vegna kerfisbreytinga hjá Sjúkratryggingum var einungis hægt að veita upplýsingar um árin 2023 til 2025. Samþykktum málum fækkaði á milli áranna 2024 og 2025 en kostnaðurinn jókst þó.
2023: 730 samþykkt mál. Heildarkostnaður: 2.739.675.776 kr.
2024: 842 samþykkt mál. Heildarkostnaður: 3.271,908,667 kr.
2025: 731 samþykkt mál. Heildarkostnaður: 3.997.488.475 kr.
Helstu meðferðir eru efnaskiptaaðgerðir, liðskiptaaðgerðir, geislameðferðir, hjartameðferðir, kynleiðréttingaaðgerðir og stofnfrumuígræðslur, að því er segir í svari frá Sjúkratryggingum.