Dómurinn var kveðinn upp í Landsrétti í dag. Í byrjun þessa árs féll dómur í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur sem Vísir fjallaði um. Ion færði konunni blómvönd en hún hafnaði gjöfinni með nokkrum þjósti og varð reið. Í kjölfar nauðgunarinnar sendi hann konunni einnig fjölda skilaboða, þar sem hann kallaði hana meðal annars elskuna sína og eiginkonu sína.
Ákæran sneri að broti gegn konu eftir jólaboð aðfaranótt annars í jólum 2022. Ion var gefið að sök að hafa þrisvar haft samræði við hana í herbergi hennar á gistiheimili í Kópavogi án hennar samþykkis, á meðan hún svaf. Hann hafi nýtt sér að hún gat ekki spornað við verknaðinum vegna svefndrunga og áfengisáhrifa.
Sakfelldur fyrir þrefalt brot
Héraðsdómur taldi sannað að maðurinn hefði gerst sekur um nauðgun einu sinni en túlkaði vafa um fjölda brotanna honum í hag. Ríkissaksóknari áfrýjaði dómnum 27. janúar og krafðist sakfellingar samkvæmt ákæru og þyngri refsingar. Maðurinn krafðist sýknu, til vara vægari refsingar, og að skaðabótakröfu yrði vísað frá eða hún lækkuð.
Landsréttur tók undir með ákæruvaldinu. Maðurinn hafði sjálfur sagt, bæði hjá lögreglu og fyrir dómi, að þau hefðu haft samræði þrisvar. Lögreglumaður sem sá upptökur úr eftirlitsmyndavélum áður en þær glötuðust hjá lögreglu sagði að maðurinn hefði að minnsta kosti þrisvar yfirgefið herbergið einn en konan aldrei. Þá fannst sæði í sýnum úr konunni og í nærfatnaði mannsins.
Landsréttur taldi sannað að konan hefði verið ofurölvi og sofandi og því hvorki getað veitt samþykki né spornað við. Maðurinn hefði notfært sér það. Hún hafði jafnframt skýrt gefið til kynna að hún vildi aðeins vináttu, en hún er fjórtán árum yngri en hann. Frásögn mannsins um að hún hefði tekið virkan þátt var metin ótrúverðug.
Við ákvörðun refsingar leit Landsréttur til þess að maðurinn hefði ekki hlotið refsidóm hér á landi áður. Einnig var horft til þess að um 27 mánuðir liðu frá því að kæra var lögð fram og þar til ákæra var gefin út. Á móti vógu atriði sem leiða til þyngingar samkvæmt. Refsingin er óskilorðsbundin.
7,5 milljónir í sakarkostnað
Landsréttur staðfesti ákvörðun héraðsdóms um tveggja milljóna króna miskabætur til konunnar, með vöxtum frá 25. desember 2022 og dráttarvöxtum eftir 30. maí 2025. Hún hafði krafist fjögurra milljóna. Konan gaf skýrslu í gegnum fjarfundabúnað frá heimalandi sínu og sagðist meðal annars þjást martröðum, kvíða og ótta.
Maðurinn var einnig dæmdur til að greiða áfrýjunarkostnað upp á 2.905.789 krónur. Þar af eru málsvarnarlaun skipaðs verjanda hans, Leós Daðasonar, 2.120.400 krónur og þóknun réttargæslumanns konunnar, Guðmundar Ágústssonar, 706.800 krónur. Úrskurður héraðsdóms um sakarkostnað upp á 4.605.396 krónur stendur óhaggað, svo kostnaður hans nemur samtals um 7,5 milljónum króna.