Diljá segir þann stuðning ná þvert á flokka og ekki sé það alltaf svo að almenningur fái veður af því.
Diljá sagði almenning helst verða vitni að rifrildum þingmanna og í spjallþáttum.
„En fæstir sjá hlýhuginn milli góðra kollega, þvert á flokka. Faðmlögin á göngunum, hvatninguna, uppbyggilegu samtölin – kærleika sem er mjög áþreifanlegur þegar fólk gengur hér í gegnum erfiðleika.“
Hún sagði traust til Alþingis og stjórnmálamanna ítrekað mælast of lítið og taldi að landsmenn ættu auðveldara með að setja sig í spor þingmanna ef þeir sæju þessa hlið á þeim.
„Og þegar við, eins og allt annað fólk, göngum í gegnum erfiðleika skiptir máli að vinna á góðum vinnustað og eiga stuðning vísan hjá samstarfsfólki. Virðulegi forseti. Alþingi er slíkur vinnustaður.“