Um sögulega stund er að ræða því allt frá því að sáttmáli Sameinuðu þjóðanna um ráðstafanir gegn þjóðarmorði var samþykktur eftir seinni heimsstyrjöld hefur heilt ríki aldrei verið sakfellt fyrir slíkt, þó að fjölmargir einstaklingar hafi verið sakfelldir.
Stjórnvöld í Mjanmar hafa ávallt hafnað ásökunum um þjóðarmorð og segjast aðeins hafa verið að bregðast við hryðjuverkastarfsemi Róhingja í landinu þegar fjölmargir voru drepnir á tveggja mánaða tímabili árið 2017, þorp Róhingja brennd og hundruð þúsunda þeirra lögðu á flótta yfir til Bangladess.
Skýr skilaboð til ríkja heims
Niðurstaðan var kveðin upp af hópi dómara frá ýmsum heimshlutum en í samantekt hins japanska Yuji Iwasawa segir að Mjanmar hafi haft ásetning um að eyða verulegum hluta Róhingja-þjóðarinnar. Þá hafi ríkið eyðilagt sönnunargögn og vanrækt þá skyldu sína að rannsaka, sækja til saka og refsa fólki sem framdi þjóðarmorð.
Níu dómarar af fimmtán sögðu Mjanmar vera sekt um þjóðarmorð og tók nokkrar klukkustundir að lesa upp alla úrskurði málsins. Málið var upphaflega höfðað árið 2019 af Gambíu fyrir hönd OIC, Samtaka íslamskra ríkja.
Mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Volker Turk, segir að úrskurður Mannréttindadómstólsins í dag verði að leiða til raunverulegra aðgerða.
„Dómstóllinn hefur skýrt hverjar skyldur Mjanmar eru. Þetta eru skýr skilaboð til allra ríkja heims um að þeir sem bera ábyrgð á þjóðarmorði verði látnir svara til saka,“ segir Turk í yfirlýsingu.
Þá bætir hann við að sú þjáning, eymd og niðurlæging sem Róhingjar hafi orðið fyrir sé blettur á samvisku mannkyns og hvetur hann jafnframt ríki til að styðja við þá Róhingja sem lifðu hörmungarnar af og úrræði og skaðabætur þeim til handa.
„No comment“
Hafa ber í huga að Alþjóðadómstóllinn í Haag hefur ekki völd til að úrskurða um refsingar heldur þarf að treysta á Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna og pólitískan þrýsting annarra ríkja til að láta úrskurði sína öðlast raunverulegt gildi. Dómurinn er engu að síður táknrænn fyrir Róhingja og gæti aukið lagalegt vægi við aðskilin sakamál.
Þegar dómurinn var birtur mátti sjá fjölmarga Róhingja fagna í flóttamannabúðum í Bangladess þar sem þeir hafa hafist við síðustu sjö árin.
Stjórnvöld í Mjanmar hafa hins vegar neitað að tjá sig um dóminn og svaraði fulltrúi landsins „No comment“ þegar hann var spurður út í niðurstöðuna um leið og hann gekk út úr dómsalnum í Haag.
Aung San Suu Kyi, var leiðtogi Mjanmar frá 2016 til 2021 en hún hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 1991 fyrir baráttu sína fyrir lýðræði og mannréttindum í Mjanmar. Í umfjöllun BBC segir að þrátt fyrir að hún hafi verið leiðtogi landsins á þeim tíma sem þjóðarmorðið átti sér stað hafi hún haft lítil völd yfir herafla landsins. Hún hafi hins vegar heldur ekki gagnrýnt aðgerðir hersins, þess í stað gagnrýndi hún fjölmiðla fyrir upplýsingaóreiðu í tengslum við atburðina.