Ragnhildur Sverrisdóttir, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar, er ómyrk í máli gagnvart þeim sem hafi „tekið sér“ veikindadag til þess að spila GTA VI. Veikindarétturinn sé mikilvægur réttur sem hafi fengist með langri baráttu og að honum fylgi líka skyldur.„Það er furðulegur fjári að sífellt skuli tönnlast á því að líklega muni margir „taka sér veikindadag“ til að spila frægan tölvuleik. Af hverju er þetta ekki kallað sínu rétta nafni: að ljúga til um veikindi?“ segir Ragnhildur í færslu á samfélagsmiðlum.
Ragnhildur ómyrk í máli vegna hegðunar fólks á útgáfudegi GTAVI – „Það er auðvitað sjúkt í sjálfu sér“