Foreldrum var greint frá málinu í tölvupósti frá stjórninni. Þar segir að frávik hafi komið í ljós við yfirferð á bókhaldi og fjármálum félagsins. Þau megi rekja til áranna 2024 og 2025, þegar umræddur gjaldkeri hafði umsjón með fjármunum þess. Ríkisútvarpið greinir frá.
„Þetta er leiðindamál og stjórnin er að vinna í þessu,“ segir Helgi Þór Guðmundsson, formaður félagsins, í samtali við RÚV.
„Þetta er komið í hendur lögreglu og hún fer sína leið.“
Samkvæmt póstinum var gjaldkerinn samstarfsfús og hefur þegar endurgreitt tæpar tvær milljónir króna. Um ein milljón stendur eftir, en gjaldkerinn hefur lýst yfir vilja til að gera skuldina upp að fullu. Stjórnin segir að fjárkröfu á hendur viðkomandi verði engu að síður haldið uppi vegna eftirstöðvanna, auk vaxta og kostnaðar.
Stjórnin segir ekkert hafa komið fram við yfirferðina sem bendi til þess að aðrir stjórnarmenn, hvorki í núverandi stjórn né fyrri stjórnum, hafi átt aðild að brotunum eða vitað af þeim. Gjaldkerinn hafi einn haft aðgang að bankareikningum félagsins og allt bendi til að hann hafi verið einn að verki.