Ari Edwald, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur (OR), segir ekki unnið að því að skipuleggja uppsagnir þrátt fyrir tilmæli Hildar Björnsdóttur borgarstjóra um að nauðsynlegt sé að hagræða í rekstri fyrirtækisins.
Hildur beindi tilmælum sínum í bréfi til Ara og Sævars Freys Þráinssonar forstjóra OR í bréfi sem sent var 4. nóvember. Þar skorar hún á þá að hefja undirbúning að hagræðingum með það fyrir augum að fækka stöðugildum, gæta aðhalds í nýráðningum og lækka rekstrarkostnað.
„Það er engin vinna við það akkúrat núna að skipuleggja einhverjar uppsagnir. En rekstur félagsins, skipulag og hagkvæmasta högun á okkar starfsemi eru auðvitað alltaf til skoðunar og við tökum þessu bréfi bara sem hvatningu í þeim efnum,“ segir Ari.
Miklar fjárfestingar fram undan
Í bréfinu rekur Hildur ástæður sínar og bendir meðal annars á að samkvæmt fjárhagsspá OR fyrir árin 2027–2031 eru fyrirhugaðar fjárfestingar upp á 218,7 milljarða króna.
Fjárfestingarnar snúa að aukinni öflun heits vatns, tvöföldun Nesjavallaæðar og Suðuræðar, uppbyggingu og endurnýjun raforkudreifikerfa vegna húsnæðisuppbyggingar og orkuskipta og uppbyggingu fráveitu- og vatnsveitukerfa.
Hildur segist styðja fjárfestingarnar heilshugar og að íbúar og tekur fram að atvinnulíf á höfuðborgarsvæðinu reiði sig á þær. Þeim fylgi þó veruleg lántaka.
Í fjárhagsspá segir Hildur að gert sé ráð fyrir nýrri lántöku upp á 161,8 milljarða króna á tímabilinu á móti 111,2 milljarða króna afborgunum. Það endi sem 50,6 milljarða hrein lántaka.
Telur að kostnaður hefði getað verið 4,4 milljörðum lægri
Í bréfi sínu bendir Hildur einnig á að rekstrarkostnaður OR hafi aukist umfram verðlags- og launaþróun á árunum 2022–2025. Athygli veki að ársverkum hafi fjölgað um 17,2% eða nær 100 ársverk á þremur árum. Ársverk sé mælikvarði á vinnuframlag en ekki endilega fjölda starfsmanna. Laun og launatengd gjöld hafi hækkað um 39,7% vegna þessa að nafnvirði eða 15% umfram þróun launavísitölu. Þá hafi rekstrarkostnaður einnig hækkað um 37,5% að raunvirði á sama tímabili.
Hildur telur að hefðu þessir kostnaðarliðir þróast í takt við launavísitölu og vísitölu neysluverðs frá 2022 hefði kostnaður árið 2025 verið um 4,4 milljörðum lægri.
Það er að laun hefðu verið 1,4 milljörðum króna lægri og rekstrarkostnaður hefði verið 2,9 milljörðum króna lægri.
Tengist ekki uppsögnum hjá Carbfix
Ari segir að þessar tölur eigi sér eðlilegar skýringar þar sem OR sé að stækka. Athygli vakti að uppsagnir voru hjá Carbfix, dótturfyrirtæki Orkuveitunnar. Ari segir að ekki séu tengsl á milli þeirra og því sem fram kemur í bréfi borgarstjóra.
Hann nefnir sem dæmi að rekstrartekjur OR hafi á árunum 2022 til 2025 vaxið um 12 milljarða á meðan kostnaður hafi vaxið um 7 milljarða. Þá hafi EBITDA (hagnaður fyrir vexti, skatta, afskriftir og niðurfærslur) eða rekstrarhagnaður farið úr 35 milljörðum í 40 á sama tímabili.
Verið sé að skoða ýmis ný tækifæri innan fyrirtækisins og nefnir Ari sem dæmi kaup Ljósleiðarans á burðarneti SÝN.
„Það færði okkur tekjur og gjöld sem voru nokkurn veginn þau sömu, 1,2 milljarðar,“ segir Ari sem undirstrikar að fjárfestingin leggi grunn að vexti.
„Þannig að að einhverju leyti endurspegla þessar tölur sem borgarstjóri tilfærir að félagið er að vaxa og á þessum árum frá 2022 og 2025, þó að kostnaður hækki hlutfallslega meira heldur en tekjur, þá er tekjugrunnurinn miklu stærri,“ segir Ari sem telur þó sjálfsagt að fara vel yfir rekstur félagsins líkt og borgarstjóri hvetur stjórnendur til að gera.