„Við gerum okkur grein fyrir því að tugþúsundir Íslendinga fara inn á þennan vef á hverjum degi og nota hann í daglegu lífi og þannig að fyrir alla er þetta stór breyting út af því að um leið og þú kemur inn á vefinn sérðu bara glænýtt viðmót,“ segir Hildigunnur H. H. Thorsteinsson veðurstofustjóri í Reykjavík síðdegis.
Markmiðið með nýja vefnum er að koma betur til móts við notendur vefsins sem eru fjölmargir. 550 þúsund manns notuðu vefinn á síðustu þrjátíu dögum og alls voru 6 milljónir flettinga. Vefurinn er einn af þeim fimm vinsælustu á Íslandi. Gamli vefurinn var um tuttugu ára gamall og því ekki sérstaklega hannaður fyrir farsíma.
„Á farsímum var erfitt á tímalínu að sjá hvernig veðrið var að breytast. Fólk vildi sjá meira staðarspána sína nálægt sér og geta leitað að ákveðnum stöðum og þetta er allt sem við erum að reyna að uppfæra á nýja vefnum,“ segir hún.
Tugir milljóna á ári
Formleg vinna við uppfærðan vef hófst fyrir um fimm árum þótt ákveðin undirbúningsvinna hafi hafist fyrir það.
„Yfir þessi fimm ár er þetta búið að kosta 460 milljónir og það er talsverð fjárhæð en við vorum í rauninni komin í mikla innviðaskuld og þetta tekur bæði á framendanum og bakendanum,“ segir Hildigunnur.
„Við þurfum alltaf að verja fimmtíu til sjötíu milljónum á ári til að viðhalda honum og lenda ekki í þessari innviðaskuld sem við vorum í. Þannig við erum svona jafnt og þétt að tryggja að hann sé eins góður og þjóðin þarf.“
Einnig séu nokkrar nýjungar, til að mynda svokölluð punktaspá. Þannig er hægt að fara á landakortið og ýta á ákveðinn stað til að sjá spá. Það nýtist til að mynda fólki með sumarbústað í innsveitum sem er ekki nálægt veðurathugun. Sömuleiðis er búið að uppfæra og betrumbæta snjóflóða- og skriðusíðurnar.
„Skriður eru veigameiri þáttur í loftslagsbreyttum heimi.“
Orðinn brothættur
Auk þess sem markmiðið var að bæta vefinn fyrir notendur og gera hann aðgengilegri var einnig tímabært að uppfæra innra kerfi hans.
„[Gamli vefurinn] var náttúrulega orðinn mjög brothættur og bara ef við hugsum, þegar eldgos fór í gang eða eitthvað svoleiðis og við vorum að setja upp fréttauppfærslur þá var það ófáum sinnum sem ég sat við hliðina á fólki sem var í stressi út af því að vefurinn var að krassa og við þurftum að vera að laga það á meðan við vorum að bregðast við eldgosinu,“ segir Hildigunnur.
Einnig sé það mikilvægt þegar litið er til atburðanna í síðustu viku að vera komin í betra og öruggara rekstrarumhverfi að mati Hildigunnar. Vísar hún þar í þegar Microsoft og Neyðarlínan lágu niðri auk þess sem allt flug var stöðvað í Bandaríkjunum vegna tæknivanda.
„Þá skilja allir hversu mikilvægt það er að tryggja öryggi og rekstrarhæfi vefsins.“
Nýi vefurinn hefur einnig verið sérstaklega álagsprófaður. Til dæmis fari mjög margir inn á vefinn skömmu eftir að stór jarðskjálfti finnst í byggð.