Roberto Pagani, ítalskur fræðimaður við HÍ, segir hættu á að ákveðnar námsleiðir leggist af, verði skólagjöld fyrir nema frá löndum utan EES að veruleika; til að mynda íslensk miðaldafræði og íslenska sem annað mál. Útlendingar, flest frá löndum utan EES, séu þar í miklum meirihluta.
Íslenska sem annað mál sé til að mynda góð leið til að ná því getustigi í íslensku sem til að mynda er krafist á Landspítalanum, segir hann.
Aðeins þrír Íslendingar lærðu íslensk handritafræði í fyrra, á móti ríflega tuttugu útlendingum.
Pagani segir Ísland eiga talsmenn um allan heim, sem hafi stundað miðaldafræði hér, og þýði íslenskar bókmenntir á erlend tungumál.
„Þetta verður náttúrlega rándýrt nám og það er útilokað að jafn margir myndu koma hingað,“ segir Pagani.
Óttast að íslensk miðaldafræði og fleiri námsleiðir leggist af