Spænska söngvarans Julios Iglesias bíður rannsókn eftir að Landsréttur úrskurðaði að meint kynferðisbrotamál hans skuli tekin upp að nýju. Þjónustustúlka og sjúkraþjálfari kærðu Iglesias fyrir kynferðisbrot og niðurlægjandi meðferð á heimilum hans í Dóminíska lýðveldinu og á Bahamaeyjum árið 2021.
Næstum ár er síðan ákæruvaldið ákvað að fella niður fyrra málið með þeim rökum að Spánn hefði ekki lögsögu í málinu. Því seinna var vísað frá fyrr á þessu ári.
Konurnar hafa verið boðaðar til vitnaleiðslu 3. febrúar 2027 enda segir dómstóllinn öll rök hníga að nýrri rannsókn. Iglesias sem er 83 hefur neitað öllum ásökunum og sagt þær fjarri lagi. Hann hefur verið einn vinsælasti tónlistarmaður Spánar um áratugaskeið og selt milljónir hljómplatna.