Úrslit liggja fyrir í í öldungadeild Bandaríkjaþings. Demókratar verða með 56 sæti af 100 eftir að úrslit réðust loks í Alaska – síðasta útistandandi öldungadeildarslagnum eftir kosningarnar fyrir rúmum tveimur vikum.
Mary Peltola tryggði sér sætið í Alaska í nótt, en talningin hefur tekið mjög langan tíma, meðal annars vegna þess hve Alaska er dreifbýlt, og það liggur þá fyrir að Demókratar verða með 56 sæti gegn 44 Repúblikana.
Í fulltrúadeildinni standa enn sjö sæti útaf, en á kjördag var morgunljóst að þar stefndi í stórsigur Demókrata.
Eins og staðan er núna eru Demókratar búnir að tryggja sér 257 sæti gegn 171. Baráttan um þessi síðustu sæti er víðast hvar á hnífsegg þar sem munar aðeins einhverjum tugabrotum í hverju kjördæmi.
Demókratar ættu að geta náð allt að 260 þingmönnum sem væri stærsti sigur í fulltrúadeildinni frá árinu 1990, en þegar horft er til heildaratkvæðafjölda til fulltrúadeildarinnar eru Demókratar með rúm 56%, sem er það mesta sem einn flokkur hefur fengið síðan 1974 eftir Watergate-hneykslið sem skók Repúblikanaflokkinn og hrakti Richard Nixon úr forsetaembætti.
Hvað þýða þessir stórsigrar fyrir Demókrata?
Þessi yfirburðastaða Demókrata á þingi – sex sæti í öldungadeildinni og rúmlega 40 sæti í fulltrúadeildinni – hefur í sjálfu sér ekkert að segja umfram eins sætis meirihluta.
Það þarf til dæmis tvo þriðju atkvæða í báðum deildum til að keyra ný lög í gegn ef forsetinn hefur beitt neitunarvaldi til að stöðva þau, og Demókratar eru langt frá því. Svo þarf sama hlutfall í öldungadeild til að reka forseta úr embætti og 60 öldungadeildarþingmenn þarf til að keyra mál í gegnum deildina framhjá málþófi.
En þetta kemur í veg fyrir að einstaka þingmenn geti tekið flokkinn í eins konar gíslingu.
Þetta var til dæmis veruleiki Repúblikana síðustu tvö ár þar sem fulltrúadeildin var svo til óstarfhæf vegna þess að illa gekk að ná meirihluta sem var aðeins eitt sæti upp á það síðasta.
Til dæmis sáu margir Demókratar fram á að John Fetterman frá Pennsylvaníu yrði þeim óþægur ljár í þúfu ef meirihlutinn í öldungadeildinni myndi velta á honum. Fetterman er talsvert jaðarsettur í sínum flokki og ávarpaði hann meðal annars landsfund Repúblikana fyrir kosningarnar og sagðist vel geta unnið með Donald Trump forseta.
Í ljósi útkomunnar er ljóst að stefna og forgangsröð Demókrata verður ekki háð duttlungum Fettermans eða annarra einstakra þingmanna.
Skiluðu kjördæmabreytingar Repúblikana engu?
Strax í fyrrasumar, þegar ljóst var að allt stefndi í óefni í fulltrúadeildinni, gripu Repúblikanar til þess að hnika til kjördæmum í þeim ríkjum sem þeir höfðu stjórn á.
Tilgangurinn var að kljúfa þau kjördæmi sem hneigðust til Demókrata, þannig að líklegir Demókratar yrðu í minnihluta í nýjum kjördæmum. Þannig væri hægt að „bjarga“ stöku sætum og jafnvel halda í von um áframhaldandi meirihluta.
En hvernig gekk? Augljóslega var niðurstaðan ekki á þann veg.
Í úttekt New York Times segir að sannarlega hafi Repúblikanar grætt stöku sæti. Þeir hafi fengið um fjórum til sjö sætum fleiri en ella, þegar mótaðgerðir Demókrata, meðal annars í Kaliforníu, eru taldar með.
Vandamálið var að Bláa bylgjan margumrædda, stórsókn Demókrata, var svo stór að hún gerði breytingarnar svo til að engu. Í venjulegu árferði hefðu Repúblikanar getað bætt við sig hátt í 20 sætum, bara í Texas, Flórída og Georgíu.
Í Texas, til dæmis, fengu Demókratar 53% atkvæða en aðeins 14 af 38 fulltrúadeildarsætum.
Með breytingunum voru Repúblikanar að þynna meirihluta sinn í „öruggum“ kjördæmum og voru kenningar um að þeir hefðu teflt á tæpasta vað.
Times telst þó til að þeir hafi hvergi tapað á breytingunum nema í Norður-Karólínuríki.
Sveiflan til Demókrata var einfaldlega of mikil á landsvísu þar sem þeir bættu við sig fylgi í öllum ríkjum og langflestum kjördæmum um allt landið.
Næsta mál á dagskrá: Kosningarnar 2028
Nýtt þing verður sett í janúar og næsta víst má telja að kosningabaráttan 2028 hefjist um leið. Þá njóta Demókratar þess að hafa náð stjórn í mörgum ríkisþingum í kosningunum, en þar er kjördæmaskipan ákveðin.
Þannig þarf ekki að skella sér í sérlegar spámannsbuxur til að gefa sér að einhver tilfærsla verði á kjördæmum fyrir næstu kosningar.