Ingunn Embla Kjartansdóttir, móðir Hildar Elfu, lýsir því svo í samtali við fréttastofu að Hildur og tvær vinkonur hennar hafi verið á leið heim af fótboltaæfingu þegar þær ráku augun í grýlukerti. Þær æfi fótbolta með Þór Akureyri og hafi verið á gangi við íþróttahúsið Bogann.
Á milli Bogans og íþróttahússins Hamars eru göng en þak ganganna er eins konar plexígler. Hildur og önnur vinkvenna hennar stíga þá upp á þakið, en það er um það bil fimmtíu sentimetra frá jörðinni. Það var þá sem Hildur Elfa féll í gegnum þakið og niður á jörðina sem er um þrír og hálfur metri.
„Hún dettur fyrst niður á járnrör og svo niður á gólf. Vinkona hennar dettur líka í gegn og nær að príla til baka. Hún fellur á gólfið á mjöðmina en er í svo þykkri vetrarúlpu, snjóbuxum og með skólatösku sem dempaði fallið,“ segir Ingunn.
„Þetta fer miklu betur en það hefði getað farið.“
Sat alblóðug á gólfinu
Þjálfari stúlknanna var á gangi í göngunum og varð vitni að fallinu. Hann hringdi strax í Neyðarlínuna og í Ingunni.
„Ég er svolítið lengi að skilja hvað gerðist og ég er með ungabarn heima og dríf mig út. Ég er enga stund að keyra og er ekki enn að fatta hvað er að gerast þegar ég kem,“ segir Ingunn.
Þegar hún gekk inn í göngin sat Hildur Elfa á gólfinu, alblóðug í andlitinu. Hildur handleggsbrotnaði við fallið, fékk skurð í andlitið og mar á mjöðina. Um tíma hélt Ingunn að hún hefði einnig fengið heilahristing þar sem hún var afar illa áttuð eftir fallið.
„Það er kraftaverk að það fór ekki verr. Ef höfuðið hefði farið undan eða þær húrrað saman niður. Maður vill ekki hugsa út í það,“ segir Ingunn.
Þegar Hildur lýsti slysinu fyrir móður sinni sagðist hún hafa lokað augunum þegar hún áttaði sig á því að hún væri að falla niður.
Ég lokaði bara augunum þegar ég sá að ég var að detta.
Hildi Elfu líði vel og hafi fengið að vera heima í dag en stefnir á að mæta í skólann á morgun. Hún hafi fengið fjölda skilaboða og gjafa frá vinum sínum og fjölskyldu. Ingunn segir að henni finnist erfiðast að mega ekki æfa fimleika eða fótbolta næstu vikurnar enda sé hún mikil íþróttakona.
Vinna komin á fullt
Ingunn segir að nú þegar sé búið að setja planka yfir ganginn til bráðabirgða. Hún vonar að þakið verði lagað til framtíðar þar sem mörg börn gangi þarna um á hverjum degi og auðvelt aðgengi sé að þakinu.
„Þetta er lítið, í hnéhæð, sem fólk labbar fram hjá. Það er minnsta mál fyrir krakka að fara þarna upp.“
Húsnæðið sjálft er í eigu Akureyrarbæjar en Þór sér um reksturinn þar. Reimar Helgason, framkvæmdastjóri Þórs, segir að gangurinn hafi upphaflega verið hugsaður sem eins konar bráðabirgðagangur til að tengja félagsheimilið við Bogann. Um er að ræða um það bil 25 metra langan gang sem beygir fyrir horn.
„Það komu menn frá Akureyrarbæ innan nokkurra mínútna ásamt viðbragðsaðilum og þeir settu allt á fullt. Það komu smiðir og settu yfir allan ganginn þeim megin,“ segir hann.
Þá verða tekin fleiri skref á næstu vikum til að laga svæðið.
„Þetta var bara til að loka þessum kafla og loka gatinu og svo var verið að skoða hvernig færi með restina. Það er umræða sem er bæjarmegin en við munum fylgja þessu eftir.“