Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur segir að leiðtogar Bandaríkjanna, Rússlands og Kína vilji allir móta alþjóðakerfið hver eftir sínu höfði en hafi mismunandi markmið.
„Trump vill sýna að hann geti unnið úr lausn alþjóðlegra deilumála og komið heim með einhverja viðskiptasamninga. Pútín er mikið að sýna að Rússland sé ekki eins einangrað og Vesturlönd hafa haldið fram, á meðan Xi vill sýna að Kína sé stórveldi og tæknirisi.“
Hún telur að staðsetning fundarins, Shenzhen í Kína, sé engin tilviljun, en Shenzhen er ein helsta tækniborg Kína.
Donald Trump, Vladimír Pútín og Xi Jinping, forsetar Bandaríkjanna, Rússlands og Kína, halda fyrsta leiðtogafund sinn á lokadegi ráðstefnu um efnahagssamstarf Asíu- og Kyrrahafsríkja í Shenzen á morgun. Leiðtogar þessara þriggja stórvelda hafa aldrei í sögunni hist á fundi.
Sýni styrk sinn út á við og innanbrúks
Guðbjörg Ríkey segir leiðtogana bæði vera að sýna styrk sinn út á við, til annarra leiðtoga og annarra ríkja, en einnig til flokksmanna og kjósenda.
„Xi vill lægja öldurnar í þessu tollastríði á meðan Trump vill koma heim með einhverja viðskiptasamninga til að sýna kjósendum að hann sé að hugsa um þeirra hag á meðan Pútín vill eflaust frá tilslakanir hvað varðar viðskiptaþvinganir og líka hvað varðar innrásina í Úkraínu,“ segir Guðbjörg Ríkey.
Guðbjörg Ríkey bendir á að aukið stórveldakapphlaup eigi sér stað og að fundurinn hafi bein áhrif á bæði Úkraínu og alla Evrópu. Verið sé að ræða um öryggishagsmuni Úkraínu án þess að þeir fái sæti við borðið. „Og við á Íslandi, við búum í smáríki og við eigum allt undir að alþjóðleg lög séu virt og að það sé farið eftir leikreglunum.“
Þannig að þú heldur jafnvel að það komi hugsanlega eitthvað út úr þessum fundi?
„Mögulega.“
Í spilaranum hér fyrir neðan má horfa á umfjöllun sjónvarpsfrétta um leiðtogafundinn í Shenzhen sem endar á viðtali við Guðbjörgu Ríkey Thoroddsen Hauksdóttur alþjóðastjórnmálafræðing.