Fyrsta umræða um frumvarp Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra um náttúru- og innviðagjald fyrir aðgang að Gullfossi, Geysi og Þingvöllum hófst rétt eftir klukkan fjögur. Þegar þessi orð eru rituð stendur umræðan enn yfir og eru þó nokkrir á mælendaskrá.
Sjá nánar: Náttúrupassi kosti 4.500 krónur en bílastæðagjöld falli niður
Frumvarpið hefur hlotið nokkra gagnrýni, sér í lagi frá þeim sem starfa innan ferðaþjónustunnar og fulltrúum sveitarfélaga á Suðurlandi þar sem staðirnir þrír eru. Samkvæmt nýju könnuninni eru samt sem 62 prósent hlynnt eða mjög hlynnt gjaldtökunni.
Þá voru 24,6 prósent andvíg fyrirhugaðri gjaldtöku og 13,4 prósent höfðu ekki skoðun.
Lítill munur var á þeim sem bjuggu í Reykjavík, á höfuðborgarsvæðinu eða í öðrum sveitarfélögum. 64 prósent íbúa í Reykjavík voru hlynnt gjaldinu, 62 prósent íbúa í nágrannasveitarfélögunum og sextíu prósent íbúa í öðrum sveitarfélögum. Þá voru 22 prósent íbúa í Reykjavík andvíg, 26 prósent íbúa í nágrannasveitarfélögunum og 25 prósent í öðrum sveitarfélögum.
Þegar litið er til stjórnmálaflokka sem þátttakendur hygðust kjósa stóð Sjálfstæðisflokkurinn sérstaklega úr þegar kom að þeim sem eru andvígir en 53 prósent þeirra sem myndu kjósa flokkinn voru andvígir. Kjósendur Samfylkingarinnar voru helst hlynntir eða 77 prósent.