Ísraelsher gerði í dag stórskotaliðsárás á innviði innan landsvæðis undir stjórn Hamas, nærri Nuseirat-flóttamannabúðunum miðsvæðis á Gaza. Fréttaritari AFP sá ísraelska skriðdreka raða sér upp austan við búðirnar og segir að skothríð og sprengjugnýr hafi kveðið við síðan um hádegisbil.
Í yfirlýsingu Ísraelshers segir að nákvæmnisárás hafi verið gerð vestan Gulu línunnar svonefndu til að stöðva ógn sem blasti við hermönnum þar. Hún hafi verið gerð vegna vopnahlésbrota Hamas. Herinn og ísraelskar öryggissveitir tóku þátt í aðgerðunum að því er segir í yfirlýsingunni.
Leiðtogar Hamas segja aðgerðina óskammfeilið brot á ákvæðum vopnahléssamkomulagsins sem gert var í október á síðasta ári.
Hún sé augljóslega til marks um að Ísraelar láti skuldbindingar sínar lönd og leið. Gula línan aðskilur svæði á Gaza sem eru undir stjórn Ísraela annars vegar og Hamas hins vegar. Ísraelsher segist ráða yfir meira en 60% af Gaza.
Yfir 1.600 Palestínumenn hafa verið drepnir frá því vopnahléið hófst, samkvæmt þeim tölum sem AFP hefur viðað að sér frá heilbrigðisyfirvöldum á Gaza sem stjórna í skjóli Hamas. Sameinuðu þjóðirnar meta tölurnar áreiðanlegar. Ísraelsher segur sjö hermenn hafa verið drepna á sama tíma ásamt einum almennum borgara.