Gert er ráð fyrir að niðurstaða atkvæðagreiðslunnar muni liggja fyrir þann 1. desember. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair. Flugvirkjar hófu verkfallsaðgerðir í september en þeim var fljótlega aflýst eftir að ríkisstjórnin samþykkti frumvarp Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra um lög um bann við verkfallsaðgerðunum.
Deilu flugvirkja við flugfélagið var vísað til ríkissáttasemjara í febrúar og gengu viðræður lengi erfiðlega. Flugvirkjar skoruðu á Icelandair í sumar um að hætta við áform um að kaupa hluta af starfsemi Play á Möltu af ótta við að störf yrðu flutt úr landi. Icelandair gekk síðar frá kaupum á hlutnum úr þrotabúi flugfélagsins Play.
Samningar Icelandair við Félag íslenskra atvinnuflugmanna og Flugfreyjufélag Íslands eru enn lausir og hafa verið það síðan haustið 2025.
Fréttin er í vinnslu.