Íslendingur um sextugt, sem búsettur er í Bandaríkjunum, var sakfelldur í Héraðsdómi Reykjaness nýlega fyrir líflátshótun við flugfreyju og brot gegn lögum um loftferðir, vegna atvika sem áttu sér stað um borð í flugi Icelandair frá Baltimore til Keflavíkur í 27. desember árið 2023.Maðurinn var farþegi á fyrsta farrými í flugvélinni ásamt eiginkonu sinni. Þegar um þrjár klukkustundir voru liðnar af fluginu fór hann að verða órólegur, standa upp og ýta ítrekað á þjónustubjöllur. Flugverjar lýstu því að hann hefði drukkið mikið, orðið æstur og hreytt fúkyrðum í áhöfnina.
Dólgurinn í jólaflugi Icelandair sakfelldur – Braut flugsætið sitt og hótaði flugfreyju lífláti