Hæstiréttur hefur snúið við dómi Landsréttar sem taldi alla dómara Héraðsdóms Reykjavíkur vanhæfa til að dæma í máli ljósmóður gegn íslenska ríkinu. Ljósmóðirin telur að lífeyrisréttindi hennar hafi verið skert.
Dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur úrskurðaði að allir dómarar dómstólsins skyldu víkja sæti í málinu vegna vanhæfis því þeir væru allir félagar í sama lífeyrissjóði og ljósmóðirin, Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins, og hefðu því fjárhagslegra hagsmuna að gæta af úrlausn málsins.
Landsréttur staðfesti úrskurðinn en ríkið skaut því til Hæstaréttar.
Hæstiréttur felldi úrskurðinn úr gildi í gær, því hann telur ekki að allir dómarar við Héraðsdóm Reykjavíkur séu vanhæfir. Þar starfi dómarar sem skipaðir voru eftir að breytingar á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, sem deilt er um í máli ljósmóðurinnar, tóku gildi 1. janúar 2017.