„Við erum að mörgu leyti ríkari sem samfélag vegna innflytjenda en þessi fjölgun byggði ekki á neinni stefnu. Þetta einhvern veginn bara gerðist. Stjórnvöld höfðu enga innsýn, enga yfirsýn, hverjir eru þetta, hvaðan kemur fólkið? Og svo heyrði maður þetta mjög skýrt í síðustu kosningabaráttu, að tala við kennara sem eru með mjög mörg börn í bekknum hjá sér sem tala ekki íslensku,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra í viðtali í Spjallinu með Frosta Logasyni í Brotkasti.
„Ef við höfum ekki áhuga á því að þessi dæmi verði mjög mjög mörg þá þarf að stoppa þetta“