Það er kalt á Sævarhöfðanum þar sem hjólhýsabúar halda sín heimili án rafmagns og vatns.
Undanfarnar nætur hefur frostið í Reykjavík farið niður í tveggja stafa tölur.
Í júlí fengu íbúar hjólhýsabyggðarinnar bréf þess efnis að rafmagn og vatn yrði tekið af svæðinu 1.nóvember.
Hjólhýsabyggðin hefur verið á Sævarhöfða í um þrjú ár en hún var þar áður á tjaldsvæðinu í Laugardal.
Hitastigið í hjólhýsinu fór niður í mínus tvær gráður
Kristján Tryggvi Ragnarsson hefur búið í hjólhýsi frá 2017.
Hann hefur nýlokið krabbameinsmeðferð og hefur ítrekað sótt um íbúð hjá velferðarsviði Reykjavíkurborgar en alltaf fengið neitun.
Kristján Tryggvi starfaði áður sem sjómaður og segir það ekki hafa verið valkost sem hentaði sér að vera á leigumarkaði. Því hafi hann tekið þá ákvörðun að búa í hjólhýsi.
Undanfarnir dagar hafa verið kaldir í Reykjavík og næturfrost farið undir tíu gráður.
Kristján Tryggvi segist heppinn að því leiti að hann hafi fengið lánaða rafstöð hjá vini sínum, þó kostnaðarsamt sé að halda henni gangandi allan sólarhringinn.
„Ég var frosinn í gær og í morgun. Alveg frosinn. Það var enginn hiti og ekki neitt. Hjólhýsið var komið niður í mínus tvær. Það er ekki gaman að vakna í því.“
Ákvörðun nýs meirihluta í borgarstjórn
Hjólahýsabyggðin hefur löngum verið rædd innan borgarstjórnar.
Nýr meirihluti ákvað í júní að nýta uppsagnarákvæði í samningi um hjólhýsabyggð sem reisa átti í Gufunesi.
Samningur borgarinnar við Samtök hjólabúa var gerður í apríl og undirritaður í maí, skömmu fyrir kosningar.
Þáverandi meirihluti studdi að samtökin fengju afnot af 3.900 fermetra landspildu í Gufunesi. Þangað átti að flytja hjólhýsabyggðina sem er á Sævarhöfða.
Einnig átti að tengja byggðina við vatn og rafmagn auk þess að koma upp salernum og sturtuaðstöðu í gámum.
Ákvörðun nýja meirihlutans olli óvissu fyrir íbúana á Sævarhöfða sem var tilkynnt í júlí að svæðinu yrði lokað 1.nóvember.
Starfsfólk velferðarsviðs borgarinnar segist síðan þá reglulega hafa bent íbúum á úrræði borgarinnar.
Tólf hjólhýsi eru enn á Sævarhöfða.
„Það er erfitt að fara eitthvað þegar það er ekki mikið annað í boði. Allir staðirnir hérna í kring eru lokaðir yfir vetrartímann,“ segir Kristján Tryggvi.
Flokkur fólksins vill lagabreytingu
Samkvæmt lögum er varanleg búseta í hjólhýsum ekki leyfileg.
Á fundi borgarráðs í lok síðustu viku lagði fulltrúi Sósíalistaflokks fram tillögu þess efnis að opnað yrði á ný fyrir aðgang að rafmagni og vatni. Meirihlutinn vísaði tillögunni frá.
Flokkur fólksins hefur lagt fram þingsályktunartillögu um að ríkisstjórnin setji lög sem heimili fólki að hafa fasta búsetu í færanlegum búsetueiningum.
Sambærileg lög eru á hinum Norðurlöndunum.
Kristján Tryggvi sakar borgaryfirvöld um mannvonsku.
„Þetta er bara mannvonska, því miður.“
Hvernig sérðu fyrir þér næstu vikur og mánuði?
„Ég veit það ekki. Maður verður bara að bíta á jaxlinn og vona að það verði eitthvað gert.“
Bara það að fá rafmagn aftur á svæðið væri nóg, segir Kristján Tryggvi.
„Við erum ekkert svona hyski eða annars flokks fólks. Bara venjulegt fólk.“