Á sýningunni koma saman myndlistarmennirnir Hlynur Helgason, Margrét M. Norðdahl, Anna Álfheiður Brynjólfsdóttir og Sandra María SIgurðardóttir, jafnan þekkt undir listamannsnafninu EssEmmEss, ásamt hljóðverkinu Þröskuldur eftir N65W14 eða Arnar Þór Guttormsson.
Í fréttatilkynningu segir:
„Í salnum hljómar 250 riða tónn sem tekur á móti gestum og hverfur svo smám saman úr vitundinni. Hann þagnar þó ekki, heldur verður hluti af rýminu, líkt og andardráttur eða hjartsláttur.
Sýningin dvelur á mörkum þess sem við skynjum og þess sem rennur saman við bakgrunninn. Listamennirnir nálgast viðfangsefnið hver með sínum hætti í gegnum ólíka miðla, form, liti, hrynjandi og endurtekningu.“
Hér má nálgast nánari upplýsingar.