Þetta kemur fram í athugasemd Össurar á Facebook síðu Heimildarinnar. Þar fer Össur mikinn við frétt af því að Ingvar Þóroddsson hafi yfirgefið Viðreisn fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
„Hver hefði trúað því að Viðreisn yrði veikasti hlekkurinn í þessu stjórnarsamstarfi? Þar eru brotin öll lögmál um tengsl forystu og almennra þingmanna ef marka má frásögn Ingvars og Jóns Gnarr, raunar einnig Pawels. Heimatilbúið klúður, en gæti reynst örlagaríkt,“ skrifar Össur og bætir við:
„Sjálfur er ég höfundur að hugtakinu "ráðherraræði" en að því kvað aldrei jafn rammt og á dögum Davíðs. Þá var þingið nánast utan sviga, þannig lagað. Þau merki sem ég sé um það á vorum dögum eru kanski helst í framkomu forystu Viðreisnar gagnvart eigin þingmönnum - sem í geri aðstoðarmanna og starfsmanna þingflokksins virðast aukaleikarar - en fullyrði þó að "ráðherraræði" vorra daga er ekki líkt því sem varð undir lok Davíðstímans,“ skrifar Össur.
„Hitt er svo annað, að allt vald spillir að lokum, og þeim sem fara lengi með mikið vald, hættir til að fara ekki vel með það. Mér sýnist þó núverandi stjórn ekki komin að neinu verulegu leyti út á þann hála ís. En hvað veit ég.“