Í tilkynningu þess efnis frá Reykjavíkurborg segir að leyfi hafi verið veitt til 21. desember fyrir afnotum af borgarlandi vegna vinnusvæðagirðinga og athafnasvæðis verktaka vegna vinnu við jarðvegsfyllingu meðfram nýbyggingu við Borgartún 1-3, þar sem nú sé um 1,5 metra breiður, nær lóðréttur uppgröftur.
Jafnframt þessu þurfi að ganga frá óvörðum 132 kílówatta rafmagnsstreng meðfram húsinu í samstarfi við Veitur, þar sem sérstakar öryggiskröfur gildi. Framkvæmdasvæði verði girt af og einni akrein Borgartúns lokað á milli Þórunnartúns og Guðrúnartúns.
Tímastýrð umferðaljós muni stýra umferð úr gagnstæðum áttum fram hjá framkvæmdasvæðinu og aðgengi að bílastæðum við Borgartún milli umferðaljósanna lokað. Vinstri beygja frá Guðrúnartúni og Þórunnartúni inn á Borgartún verði óheimil. Hjáleið sé fyrir gangandi vegfarendur.