Þetta kemur fram í tilkynningu frá Norðurorku. Þar segir að staðan í birgðageymum bæjarins hafi verið fyrir neðan öryggismörk síðan í gærkvöldi, mánudaginn 16. nóvember. Unnið hafi verið að því í dag að bæta stöðuna og mun sú vinna samkvæmt Norðurorku halda áfram eins lengi og þarf. Staðan sé viðkvæm og lítið megi út af bregða.
„Við Mímisbraut er olíuketill sem er nýttur í neyð og unnið er að því að gangsetja hann. Ketillinn hitar upp bakrásarvatn og skilar því heitu inn á geymana. Markmiðið er að hann verði í gangi í sem skemmstan tíma til að lágmarka olíunotkun. Kuldakastið síðustu daga hefur haft þau áhrif að notkun á heitu vatni hefur aukist umfram framleiðslugetu. Óskað hefur verið eftir því við stórnotendur að þeir dragi úr notkun á heitu vatni eins og kostur er, til dæmis hefur verið skrúfað fyrir upphitun íþróttavalla í bænum svo dæmi sé tekið. Þeim eru færðar þakkir fyrir skjót viðbrögð.“