Kristín gerði sögu sonar síns að umtalsefni í umræðum um áform meirihlutans um að efla skóla- og frístundastarf.
Hún rifjaði upp hvernig fyrst vaknaði grunur um að hann væri öðruvísi en önnur börn þegar hann sat í sama sófanum með sama bílinn og sneri sama dekkinu þegar hún sótti hann á leikskóla. Hann var greindur með einhverfu og mikla málþroskaröskun.
Þegar hann var þriggja ára hafi hann hvorki geta sagt já né nei og ekki mamma, að sögn Kristínar. Hann hafi borið litla möppu um hálsinn til að sýna hvað hann vildi. Þegar hann fór í leikskóla á vegum Hjallastefnunnar hafi hann fengið talþjálfun þrisvar á dag og var farinn að tala eftir þrjá mánuði.
„Svo mætir hann í 1. bekk og allt í einu bara, ekkert, enginn stuðningur. Hann er ekki nógu einhverfur til þess að fara á einhverfudeild, ekki nógu hefðbundinn til þess að sitja í bekk. En jú, skóli án aðgreiningar. Hann skal aðlagast. Það gerði hann ekki,“ sagði hún.
Hildur var sú eina sem svaraði
Kristín skrifaði grein um stöðu sonar síns og sendi hana á alla borgarfulltrúa. Einn þeirra svaraði henni, Hildur Björnsdóttir sem nú er borgarstjóri.
„Og ekki bara svar, heldur sendi hún líka fyrirspurn fyrir mig í skóla- og frístundaráði, hélt mér upplýstri og ég er henni ævinlega þakklát fyrir að hafa tekið undir þessar áhyggjur mínar,“ sagði Kristín.
Líkti skólanum við búr fullt af ljónum
Syni hennar hafi liðið afar illa í skóla á síðasta skólaári og hann hafi sýnt sjálfskaðandi hegðun. Einn morguninn hafi hann líkt skólasókn við að vera settur í búr fullt af ljónum. Kristín tók þá ákvörðun um að semja við skólann um hálfa daga þar sem hann ver hluta skóladagsins utan kennslustofunnar.
„Hann getur nefnilega lært og hann er meira að segja greindur með afburðagreind. Hann getur sagt ykkur allt um frumur, risaeðlur, um sólkerfið og kjarnorku. Það er það nýjasta. En hann bara getur ekki lært í þessu umhverfi. Hann lærir ekkert af námsefninu, ekki neitt. Hann er bara í geymslu allan daginn eins og svo mörg önnur börn.“
Hún sagði að markmið skóla án aðgreiningar væri jöfnuður en taka þyrfti betur mið af því hversu ólík börn væru.
„Það má aðgreina eftir hæfni og getu og við eigum að gera það. Enginn er góður í öllu en það eru allir góðir í einhverju,“ sagði hún.
Hún rifjaði upp að sonur hennar hefði hvatt hana áfram í kosningabaráttunni og sagt að hún þyrfti að gera þetta fyrir börn eins og hann.
Í lok ræðunnar sagðist Kristín vona að Hildur, sem hefði tekið undir áhyggjur hennar á sínum tíma, myndi nú leiða vinnuna við að bæta skólastarfið.
„Hann hefur trú þannig að ég verð að hafa trú áfram og ég er enn þá til í að hjálpa ef þið eruð til í að hlusta.“
Tillögur fyrir lok nóvember
Borgarráð hefur falið skóla- og frístundasviði að móta tillögur um bættan lesskilning, stærðfræði og vísindalæsi í kjölfar niðurstaðna PISA. Um 80 manns tóku þátt í samráði í ráðhúsinu í gær en þar var rætt um snemmtækan stuðning við börn, íslensku sem annað tungumál og samstarf heimila, skóla og frístundastarfs.
Tillögurnar eiga að fara fyrir skóla- og frístundaráð og leikskóla- og daggæsluráð fyrir lok nóvember, síðan til borgarráðs og til umræðu í borgarstjórn.