Þýski fjármálarisinn Deutsche Bank setti eigin hagsmuni ofar því að fylgja alþjóðlegum refsiaðgerðum og lögum og reglum um varnir gegn peningaþvætti. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem rúmlega 200 blaðamenn unnu að.
Brotthvarfi bankans frá Rússlandi ólokið
Rannsóknin var kölluð Inside Deutsche Bank, bak við tjöldin hjá Deutsche Bank. Blaðamenn frá Der Spiegel, Financial Times, The New York Times, Le Monde og þýska almannaþjónustumiðlinum ZDF tóku meðal annars þátt í henni.
Hún byggir á 15 milljónum skjala, sem ná allt að 20 ár aftur í tímann, sem var lekið af uppljóstrurum innan bankans.
Rannsóknin varpar ljósi á tengsl bankans við rússneska ólígarka, kynferðisbrotamanninn og barnaníðinginn Jeffrey Epstein og Donald Trump áður en hann varð forseti Bandaríkjanna.
Samkvæmt skjölunum lagði bankinn sig fram við að laða að auðjöfra og leitaðist við að auka umsvif sín í Rússlandi skömmu fyrir allsherjarinnrás þeirra í Úkraínu 2022, þrátt fyrir ítrekaðar viðvaranir frá sérfræðingum bankans og áhættu á peningaþvætti.
Þá er bankinn sagður hafa verið tregur til að draga sig út úr rússnesku efnahagslífi eftir innrásina en hafi þó á endanum yfirgefið landið um mánuði síðar.
Bankastjórinn Christian Sweing er sagður hafa verið í vinnuhópi sem þróaði stefnu bankans í Rússlandi og í umfjölluninni er bent á að enn eigi eftir að ganga frá brotthvarfi bankans frá Rússlandi.
Grundvallarbreytingar á starfsemi bankans
Rannsóknin bendir til þess að samkeppni, meðal annars frá bandarískum bönkum, hafi knúið starfsemina áfram og að Sweing hafi fylgt vaxtarstefnu sem hafi falið í sér viðskipti við það sem bankinn kallaði „viðkvæma viðskiptavini“.
Samkvæmt Financial Times náði sá hópur til um 50 fyrirtækja og einstaklinga sem voru metnir út frá því hversu sterk tengsl þeir höfðu við rússnesk stjórnvöld og aðra áhættu, meðal annars hættu á fjármálabrotum.
Rússneska orkufyrirtækið Gazprom og óligarkar voru meðal annars sagðir vera á listanum.
Skjölin varpa einnig ljósi á samband bankans við Epstein. Hann hafði þegar sætt gagnrýni fyrir grunsamlegar greiðslur tengdar honum en þær virðast vera hærri en áður var talið. Greiðslurnar eru taldar hafa numið nærri 600 milljónum bandaríkjadala.
Bankinn segist sjá eftir viðskiptasambandi sínu við Epstein og að ráðist hafi verið í „umtalsverðar fjárfestingar til að styrkja innra eftirlit“.
Gögnin benda einnig til þess að bankinn hafi sett upp umdeilt skattahagræðingarkerfi fyrir efnaða viðskiptavini og að glæpahópar hafi getað flutt fjármuni í gegnum hann.
Bankinn gaf út yfirlýsingu í kjölfar rannsóknarinnar þar sem hann sagðist hafa gengið í gegnum grundvallarbreytingar undir stjórn Sweing.
„Við fórum í umfangsmiklar fjárfestingar til að efla eftirlits- og innra kerfi bankans samhliða því að endurheimta sjálfbæra arðsemi.“
Bankinn sé áfram staðráðinn í að efla og bæta eftirlit og ljúka þeim úrbótum sem enn er ólokið.
„Óháð því hvernig upplýsinganna var aflað innihéldu þær trúnaðarupplýsingar um viðskiptavini, starfsfólk og aðra sem njóta lagalegrar verndar. Við höfum gripið til aðgerða og gerum það áfram af festu til að verja þessar upplýsingar.“