Valur Gunnarsson rithöfundur og sagnfræðingur gerir stríðinu skil í færslu samfélagsmiðlinum Facebook. Hann segir sigur Rússa smám saman vera farinn að verða óhjákvæmilegur, Rússar séu að missa fimmtíu þúsund manns á mánuði, það geti engin þjóð þolað. Einnig er rætt við Erling Erlingsson hernaðarsagnfræðing um stöðuna í Úkraínustríðinu í Reykjavík síðdegis, hann tekur ekki eins djúpt í árina og Valur um endalok stríðsins en segir að mánuð eftir mánuð séu sett skelfileg met í mannfalli Rússa.
Pútín geti ekkert gert nema hefna sín á borgurum
„Og þá er sigur Úkraínu smám saman farinn að verða óhjákvæmilegur. Rússar eru að missa 50.000 manns á mánuði, eitthvað sem engin þjóð getur þolað. Laun berast ekki til hermanna og er að hluta til stolið af herforingjum, skráningarbónusar og dauðabónusar hafa verið minnkaðir niður í nánast ekkert. Meðallíftími Rússa á víglínunni er um 30 mínútur og ef fjölskyldan fær engan arf er það til lítils,“ skrifar Valur Gunnarsson sagnfræðingur og rithöfundur. Hann hefur fylgst með stríðinu um árabil og meðal annars skrifað bókina Bjarmalönd: Rússland, Úkraína og nágrenni í nútíð, fortíð og framtíð.
„Úkraínumenn hafa endurheimt meira og minna allt svæði sem Rússar lögðu undir sig í ár. Allar þessar fórnir eru því til einskis. Pútín er búinn að tapa stríðinu á víglínunni og getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum. En sagan þekkir engin dæmi þess að fólk hafi gefist upp vegna loftárása, né heldur að þjóð sem hafi ekki viljað láta sigra sig hafi verið sigruð af árásaraðila eftir fimm ára stríð. Við sjáum að Trömpistarnir yfirgefa sökkvandi skip, nú er bara spurning um hvort Pútín lendi í einhverju óhappi og daginn eftir mun stríðinu ljúka.“
Drónarnir veiti mynd af mannfallinu
Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni að erfitt sé að segja til um stöðuna í stríðinu þrátt fyrir velheppnaðar árásir Úkraínumanna undanfarna daga.
„Í raun og veru hefur þessi árásarherferð Úkraínumanna inn í Rússland staðið yfir um nokkurra mánaða skeið og haft mikil óþægindi í för með sér fyrir Rússa bæði efnahagslega og hvað varðar hernaðinn. Á sama tíma hafa þeir aukið mjög á árásir sínar gegn borgaralegum innviðum í Úkraínu en líka í kringum víglínuna, þannig að nei það er ekki að sjá að það sé að verða einhver grundvallarbreyting á átökunum, þetta er stál í stál.“
Úkraínumönnum hafi þó tekist að byggja upp eigin árásargetu á undanförnum árum sem farin sé að hafa áhrif á stöðuna í stríðinu. Komið sé ákveðið jafnvægi á, jafnvel að það halli á Rússa.
„Síðan er undirliggjandi þar að mannfall Rússa er stjarnfræðilega hátt. Mánuð eftir mánuð virðist sett skelfilegt met í því hversu margir rússneskir hermenn eru særðir að falla. Og af því að það eru drónar sem standa á bak við flestar þessar árásir geta Úkraínumenn skrásett mjög nákvæmlega þetta mannfall og það eru tugir þúsunda í hverjum mánuði.“
Hvað getur þetta gengið lengi svona?
„Ja, þetta getur gengið ansi lengi í raun og veru. Pútín væntanlega veðjar á það að Úkraínumenn þverri baráttuþrek. Ég held að það sé ekki líklegt því þeir vita hvers lags skelfing myndi bíða þeirra ef þeir tapa þessu stríði. Hann veðjar væntanlega einnig á að stuðningur Evrópu muni minnka en ég held að flestir Evrópuleiðtogar átti sig á því að hér er ekki bara tekist á um Úkraínu heldur framtíðaröryggi Evrópu í heild og jafnvel alþjóðakerfisins. Spurningamerkið er áfram bandarísk stjórnvöld en þau eru auðvitað löngu hætt að styðja Úkraínu og eru kannski vilhallari Rússum ef eitthvað er þannig að ég held því miður að þetta geti viðgengist ansi lengi í viðbót.“
Hefur litla trú á fundi þremenninganna
Erlingur segist allar friðarþreifingar sem Trump-stjórnin hafi staðið fyrir hafi reynst mjög ótrúverðugar. Þær virðist hafa miðað að því að gera Rússum auðveldara fyrir að enda stríðið frekar en að setja raunverulegan þrýsting á þá um að ljúka stríðinu. Sérfræðingar hafi klórað sér í hausnum yfir aðferðafræði Bandaríkjanna. Þá hefur hann litla trú á væntanlegum fundi Donald Trump með Vladimír Pútín Rússlandsforseta og Xi Jinping forseta Kína.
„Ég held það sé ekki líklegt að þessi fundur næði miklum árangri. Í lok síðari heimsstyrjaldar voru komnir saman menn sem áttu sameiginlegan óvin en því er ekki að heilsa nú,“ segir Erlingur og vísar í Yalta fund Winston Churchill forsætisráðherra Bretlands Jósefs Stalín leiðtoga Sovétríkjanna og Franklin Roosevelt forseta Bandaríkjanna frá 1945.
„Hér eru keppinautar. Þannig að ásýndin verður þannig að þetta verði merkilegur fundur en það er erfitt að sjá fyrir sér að það gæti komið eitthvað áþreifanlegt út úr honum eða ávinningur, sérstaklega fyrir Bandaríkin sem hafa kannski minnst að græða á slíkum fundi.“