Mbl.is hefur eftir Júlí Karlssyni aðstoðarsaksóknara hjá embættinu að málið hafi verið fellt niður en ekki er gefið upp hvers vegna. Um var að ræða tvo starfsmenn Náttúruhamfaratrygginga Íslands, tvo starfsmenn verkfræðistofunnar Eflu og einn starfsmann verktakafyrirtækisins sem Lúðvík starfaði hjá þegar hann féll ofan í sprungu 10. janúar 2024 með þeim afleiðingum að hann lést.
Úlfar Lúðvíksson þáverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum sagði í samtali við Vísi í fyrra að rannsóknin hefði beinst að 215. ákvæði hegningarlaga sem fjallar um manndráp af gáleysi og um brot á lögum um aðbúnað og hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Veitti hann ekki frekari upplýsingar um málið á þeim tíma.
Áður hefur komið fram að Vinnueftirlitið hafi rannsakað slysið og sagt í skýrslu að slysið mætti rekja til þess að ekki hafi farið fram nægilega góð kynning á helstu hættum sem gætu steðjað að þeim sem ynnu á vettvangi. Þá velti Vinnueftirlitið því fram hvort verkið sem var unnið hafi verið áhættunnar virði.
Leit fór fram að líkamsleifum Lúðvíks í sprungunni í lok október en var síðar hætt. Lögregla sagði þá að engar vísbendingar hafi fundist og að formlegri leit af hálfu lögreglu teldist lokið.