Aðili sem ætlaði að flytja inn fæðubótarefnið Berberine HCL til einkanota lagði fram stjórnsýslukæru til atvinnuvegaráðuneytisins eftir að póstsending sem innihélt meðal annars efnið var stöðvuð. Ráðuneytið hefur nú úrskurðað að kærunni skuli vísað frá en beinir því til Matvælastofnunar að endurskoða verklag sitt í málum af þessu tagi. Segir ráðuneytið raunar að verklag stofnunarinnar samræmist hvorki tollalögum né leiðbeiningarskyldu stjórnvalda.
Segja Matvælastofnun að endurskoða verklag sitt eftir að sending með fæðubótarefni var stöðvuð