Bandaríkin gerðu loftárás á Qeshm-eyju í Hormússundi í dag, stuttu eftir að íranski byltingarvörðurinn sagðist hafa gert árás á ratsjárstöð í Barein. Bandaríkin hafa afnot af henni.
AFP-fréttaveitan hefur eftir bandarískum embættismanni að herflugvélar hafi notað stýriflaugar til að gera árás á skotpall fyrir flugskeyti á vegum byltingarvarðarins á Qeshm-eyju.
Íranski ríkisfjölmiðillinn IRNA sagði Bandaríkjamenn hafa hæft eyjuna en ekki valdið miklum skemmdum.
Fyrr í dag heyrðust sprengingar í Barein en herinn þar í landi sagði loftvarnarkerfi hafa komið í veg fyrir að flugskeytin hæfðu skotmörk. Byltingarvörðurinn sagðist hafa beint sjónum sínum að ratsjárkerfi sem Bandaríkjamenn reka í Barein.
Þetta er ekki í fyrsta skipti í þessum mánuði sem Bandaríkin gera árás á Qeshm-eyju. 3. nóvember gerði herinn árásir. Haft var eftir embættismönnum í bandarískum fjölmiðlum að árásirnar hefðu verið gerðar í varnarskyni.