Breskur karlmaður sem varð 86 ára gamalli konu að bana þegar hann ók á hana á rafkrossara hefur fengið fangelsisdóm sinn þyngdan um eitt ár og níu mánuði. Áfrýjunardómstóll í Bretlandi taldi fyrri refsingu mannsins of væga.DV fjallaði um málið í maí, þegar Billy Stokoe, sem nú er tvítugur, var dæmdur í sex ára og níu mánaða fangelsi fyrir að verða Gloriu Stephenson að bana í Sunderland á Englandi.
Málið sem vakti mikla reiði tekur nýja stefnu