Í umfjöllun breska ríkisútvarpsins er vitnað til gagna á vegum alþjóðaheilbrigðisstofnunar Ameríku (PAHO) þar sem kemur fram að sama tilfellið af mislingum hafi ítrekað greinst í Bandaríkjunum í meira en tólf mánuði. Hið sama eigi við um Mexíkó og Bólivíu en ástæðan er sú að æ fleiri kjósa að sleppa því að bólusetja börn sín við sjúkdómnum.
Fram kemur að 5400 tilfelli hafi greinst í Bandaríkjunum í ár. Tíu hafi látist úr sjúkdómnum. Þetta sé mesti fjöldi síðan á tíunda áratugnum. Bandarísk heilbrigðisyfirvöld segja að róið verði öllum árum að því að gera fólki auðveldara að nálgast bólusetningu gegn sjúkdómnum.
Vírusinn sem kenndur er við mislinga er oftast þekktur fyrir einkennin sem felast í flekkóttum rauðum útbrotum. Fyrir tilkomu bóluefna greindist milljónir barna á ári með sjúkdóminn en veiran er bráðsmitandi og getur reynst banvæn. Þá geta sjúklíngar glímt við langvarandi fylgikvilla líkt og heilabólgu og minni getu ónæmiskerfisins til varna.
Segir í umfjöllun BBC að í Bandaríkjunum sé mælt með tveimur skömmtum af bóluefni gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum fyrir börn á aldrinum eins til sex ára. Fram kemur að Bandaríkin feti í fótspor nokkurra annarra landa sem hafi misst stöðu sína sem mislingalaust land, svo sem lönd eins og Kanada, Bretland og Spánn. Forsvarsmenn PAHO segja að Bandaríkin verði að bregðast við þegar í stað og auka fjölda þeirra sem fari í bólusetningu.