Þetta kemur fram í Landsréttarúrskurði sem var kveðinn upp 30. janúar 2024 en birtist á vef Landsréttar í dag.
Úrksurðað var í máli móðurinnar sama dag en dómstóllinn hafnaði farbanni yfir þeim báðum þar sem ekki þótti rökstuddur grunur um mansal samkvæmt skilgreiningu þeirra í hegningarlögum.
Hafi gert samkomulag um hjónaband
Tollverðir á Keflavíkurflugvelli stöðvuðu hinn 5. nóvember 2024 erlendan mann sem kom til landsins ásamt stúlku fæddri árið 2009.
Samkvæmt atvikalýsingu lögreglu framvísaði maðurinn skjali á erlendu máli sem hann sagði gefið út af yfirvöldum í öðru landi. Samkvæmt því hefðu foreldrar stúlkunnar leyft henni að ferðast með honum. Lögregla taldi skýringar hans ófullnægjandi og handtók manninn en stúlkan var færð í umsjá barnaverndar.
Er stúlkunni var fylgt út úr flugstöðinni komu tveir menn að. Annar hafi sagst vera faðir hennar en hafi ekki getað útskýrt tengsl þeirra nánar, að sögn lögreglu. Báðir hafi verið handteknir og síðar hafi komið í ljós að annar væri faðir mannsins, ekki stúlkunnar, og að hinn væri frændi mannsins.
Foreldrar stúlkunnar komu til landsins þremur dögum síðar og voru handtekin við komuna. Lögregla segir að við skýrslutöku hafi þau kannast við að fjölskyldurnar hefðu gert samkomulag um samband dóttur þeirra og mannsins og jafnframt sagt að foreldrar mannsins hefðu greitt flugmiða þeirra til Íslands.
Hafi staðfest að hjónabandið væri „innsiglað“
Við skýrslutöku hafi stúlkan sagt að brúðkaup hefði verið haldið í húsi föður mannsins erlendis. Þar hefði hún klæðst hvítum kjól og maðurinn haft kynferðismök við hana á efri hæð hússins á meðan ættingjar biðu niðri.
„Í kjölfarið fóru þau niður og sýnd rauðan blett til merkis um kynferðismökin og til staðfestingar á sambandinu og að það væri innsiglað.“
Lögregla kvaðst vera í nánu samstarfi við yfirvöld í upprunalandi fólksins, sem hefðu staðfest að „barnabrúðkaup samkvæmt rómahefðum“ væru ólögleg þar.
Í téðum Landsréttarúrskurði var farbanni yfir manninum hafnað. Sömu sögu er að segja í úrskurði yfir móður hennar.
Dómstóllinn taldi að lögregla hefði ekki rökstuddan grun um mansal samkvæmt 277. grein hegningarlaga. Önnur lagaákvæði voru ekki tilgreind með beinum hætti.
Dómur birtur 22 mánuðum síðar
Tíðkast hefur að rannsóknarúrskurðir birtist á vef dómstóla dögum, vikum eða jafnvel mánuðum eftir að þeir eru kveðnir upp.
Bjarni Hauksson, verjandi föðurins, segist í samtali við Vísi ekki vita hvers vegna þessi tiltekni rannsóknarúrskurður birtist tæplega 22 mánuðum eftir að hann var kveðinn upp.
Ekki liggur fyrir hvort ákæra hafi verið gefin út og verjandinn vildi ekki tjá sig um málið.