Framtíð gusunnar Sækots er í uppnámi en á morgun tekur Héraðsdómur Reykjavíkur fyrir aðfarabeiðni borgarinnar sem freistar þess þar að endurheimta grásleppuskúrinn sem hýsir starfsemina. Telur borgin að gusumeistarinn Vala Baldursdóttir hafi sölsað skúrinn undir sig með ólögmætum hætti en deilt er um eignarhaldið eftir að fyrrum eigandi skúrsins rifti afsali sínu til borgarinnar.
Gusumeistari mætir borginni í dómsal á morgun og furðar sig á hörkunni - „Sérstakt að fara þessa leið“