Skólastjórnandi hefur rætt atvikið við aðra starfsmenn og sendi Sigríður Nanna Heimisdóttir skólastjóri tölvupóst til foreldra vegna málsins í kvöld. Hagaskóli er grunnskóli í Vesturbæ Reykjavíkur og stunda nemendur þar nám í áttunda til tíunda bekk.
Hjördís Rut Sigurjónsdóttir, verkefnastjóri samskipta hjá skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar, segir í svari til fréttastofu að starfsmennirnir hafi talið sig vera í einrúmi.
„Skólastjórnendur hafa rætt við hlutaðeigandi og málið er til skoðunar í samráði við mannauðsskrifstofu skóla- og frístundasviðs. Málið verður unnið áfram samkvæmt viðeigandi verkferlum.
Í kjölfarið var lögð áhersla á að starfsfólk væri sýnilegt og aðgengilegt á göngum skólans svo nemendur gætu leitað til þess ef þeir hefðu spurningar eða vildu ræða málið.“
Fréttin hefur verið uppfærð.