Þetta segir Sergey Aksyonov, héraðsstjóri Rússa á Krímskaga, í færslu á samskiptamiðlinum Telegram. Hann bætir við að unnið sé að því að meta skemmdir og frekari upplýsingar verði veittar síðar.
Í gær var greint frá því að Úkraínumenn hefðu skotið eldflaugum að brúnni og beint drónum að henni með þeim afleiðingum að stór hluti hennar hrundi. Sú aðgerð átti sér stað eftir að Rússar skutu skotflaugum að helstu brúm Kænugarðs, höfuðborgar Úkraínu. Kerch-brúin er gerð fyrir bæði lestir og ökutæki en lestarumferð hélt áfram yfir hana eftir fyrri árásir Úkraínuhers.
Viðræður í skugga árása
Úkraína gerði árásir á tvær olíuhreinsunarstöðvar í suðurhluta Rússlands, að sögn úkraínskra embættismanna í dag. Volodimír Selenskí Úkraínuforseti lofaði í sömu andrá öflug úkraínsk vopn sem eru sögð hafa valdið skemmdum á umræddri Kerch-brú.
Bæði Rússar og Úkraínumenn hafa haldið árásum sínum áfram á meðan beðið er eftir frekari fregnum af viðræðum þeirra sem fara fram með milligöngu Bandaríkjanna. Donald Trump Bandaríkjaforseti segist ætla að ræða stríðið við Xi Jinping, forseta Kína, og Vladimír Pútín Rússlandsforseta í heimsókn sinni til Kína á morgun. AP-fréttaveitan greinir frá en allsherjarstríðið hefur nú staðið yfir í tæplega fimm ár.
Úkraínumenn segja að árásirnar hafi hæft geymslutanka í Ilsky-hreinsunarstöðinni og vinnslustöð í Afipsky-hreinsunarstöðinni. Báðar eru í Krasnodar-héraði í Rússlandi. Einnig voru gerðar árásir á sömu tvær hreinsunarstöðvarnar aðfaranótt mánudags en þær geta samanlagt unnið um 95 milljónir tunna af olíu á ári, að sögn Úkraínuhers. Þá sjái þær rússneskum hersveitum á víglínunni í suður- og austurhluta Úkraínu fyrir eldsneyti.
Rússneskir embættismenn greindu frá árásum á tvær iðnaðarstöðvar í sama héraði en veittu ekki nánari upplýsingar.
Úkraína hefur ítrekað gert árásir á olíuhreinsunarstöðvar með það að markmiði að skaða olíuiðnað Rússlands sem er ein helsta efnahagsstoð landsins. Þá hefur Rússland haldið áfram allsherjarinnrás sinni í Úkraínu.
Fréttin hefur verið uppfærð.