Fimm Evrópusambandsríki hafa náð samkomulagi við yfirvöld í Rúanda um að taka við fólki sem leitað hefur hælis í ríkjunum fimm og verið endanlega synjað um það. Þetta eru Þýskaland, Austurríki, Holland, Grikkland og Danmörk, sem hefur beitt sér fyrir þessu um árabil en orðið lítið ágengt, þar til nú. Fjallað var um þetta í Speglinum á þriðjudag og rætt við Önnu Lúðvíksdóttur framkvæmdastjóra Íslandsdeildar Amnesty International. Hlusta má á þá umfjöllun með því að smella á þennan hlekk, eða á lengri útgáfu með óstyttu viðtalinu við Önnu í spilaranum hér að neðan.
Leiðtogar ríkjanna fimm hittust í Austurríki í vikunni. Að fundi loknum tilkynnti Christian Stocke, kanslari Austurríkis, að þau stefni að því að opna fyrstu, sameiginlegu brottvísunarstöð sína í Rúanda strax á næsta ári.
Þetta kemur engum á óvart sem fylgst hefur með tilraunum Breta og Dana í þessa veru undanfarin ár. Mette Frederikssen forsætisráðherra Danmerkur var mjög áfram um þessa „lausn“ nánast frá því að hún tók við formennsku Jafnaðarmannaflokksins. Hún vann ötullega að því að afla henni brautargengis í aðdraganda kosninganna 2019, sem skilaði flokknum atkvæðum og henni forsætisráðuneytinu að kosningunum loknum.
Dönsk áform í vaskinn eftir að þau bresku voru dæmd ólögleg
Þessi áform Frederiksen gengu ekki jafnvel í alla en 2022 voru samningar þó næstum í höfn. Þáverandi innanríkis- og þróunarmálaráðherrar fóru í skoðunarferð í svipaðar búðir fyrir líbískt flóttafólk í Rúanda og funduðu með fjölda rúandískra ráðamanna.
En skömmu áður en þeir samningar náðust fóru svipaðar áætlanir Breta út um þúfur þegar breskir dómstólar og Mannréttindadómstóll Evrópu gerðu stjórnvöld afturreka með þessi áform sín og sögðu þau ólögleg.
Það var einkum vegna þess að Bretar ætluðu að senda nánast öll þau sem komu ólöglega til Bretlands til Rúanda í einum grænum, áður en hælisumsókn þeirra var tekin til skoðunar. Auk þess lýsti Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna því yfir fyrir dómi að Rúanda væri ekki í stakk búið að taka á móti miklum fjölda flóttafólks. Það var meðal annars rökstutt með tíðum, víðtækum og alvarlegum mannréttindabrotum stjórnvalda þar.
Sett í salt en dregið fram á ný og gert að Evrópumáli
Í framhaldinu urðu ríkisstjórnaskipti í báðum löndum og áherslur breyttust. Verkamannaflokkurinn breski féll frá áformum um brottvísun hælisleitenda til þriðja ríkis skömmu eftir að hann tók við völdum og í Danmörku varð Lars Løkke Rasmussen utanríkisráðherra í nýrri ríkisstjórn Frederiksen. Hann vildi ekki að Danmörk héldi áfram með málið ein og óstudd og lagði til að frekar yrði unnið að því að breyta lögum og samþykktum Evrópusambandsins, til að gera þetta mögulegt. Frederiksen tók hann á orðinu.
„Þetta er ekki bara danskt vandamál, þetta er sameiginlegur vandi [Evrópusambandsins] og ef við getum fundið sameiginlega lausn á honum þá tel ég það mun ákjósanlegra,“ sagði forsætisráðherrann. Og það varð úr.
MIkill pólitískur sigur fyrir Frederiksen
Og nú ber svo við að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna er Rúanda og Evrópuríkjunum fimm til ráðgjafar við endanlega útfærslu samningsins, með það fyrir augum að finna leið til að samræma hann alþjóðalögum.
Það sem fyrir liggur er að ríkin fimm segjast einungis munu vísa því fólki úr landi og til Rúanda, sem tæmt hefur allar mögulegar, löglegar leiðir til að öðlast hælisvist. Þetta, segir Alexander Dobrindt, innanríkisráðherra Þýskalands, gerir gæfumuninn, er grundvallarmunur á þessum samningi og þeim breska frá 2023.
Stefnubreyting Evrópusambandsins og tilkynningin um þennan nýja samning er mikill pólitískur sigur fyrir Mette Frederiksen, segir stjórnmálaskýrandi Danmarks Radio. Og Lars Løkke Rasmussen er ekki í vafa um að þetta sé góður samningur, góð lausn - fyrir alla hlutaðeigandi.
Aðspurður, hvort Rúanda sé raunverulega góður staður fyrir brottvísunarstöð svarar Rasmussen því afdráttarlaust játandi. „Já, það vil ég meina,“ segir utanríkisráðherrann danski.
47 alþjóðasamtök fordæma fyrirhugaða nauðungarflutninga til Rúanda
En því fer fjarri að einhugur ríki um þá skoðun. 47 alþjóðasamtök af ýmsu tagi vara sterklega við hinni boðuðu útvistun á hælisleitendum og flóttafólki og örlögum þeirra til þriðja ríkis. Í sameiginlegri yfirlýsingu mótmæla Alþjóða rauða krossinn, Amnesty International, Mannréttindavaktin (Human Rights Watch) og hin samtökin fjörutíu og fjögur brottvísun flóttafólks til þriðja ríkis almennt, og flutnings þeirra til Rúanda sérstaklega.
Varað er við því að samningurinn leiði til þess að fjöldi fólks sem flúið hefur stríð, örbrigð, hungur og aðra neyð til Evrópu og náð að festa þar einhverjar rætur, finna þar frið og öryggi og byggja sér upp vísi að venjulegu lífi, er rifinn á brott og fólkið sent til lands eða landa þar sem það á enga að, enga fjölskyldu, enga vini, ekkert tengslanet - og enga vissu um framhaldið.
Þetta, segja samtökin í yfirlýsingu sinni, gildir um öll sem svona er komið fyrir, óháð því hvaðan þau koma og hvert þau eru send. Það gerir svo illt verra ef áfangastaðurinn er af verri endanum. Og sú er einmitt raunin með Rúanda að mati þessara samtaka allra, í ljósi ljótrar og langrar sögu mannréttindabrota þar í landi.
Ólöglegt, óframkvæmanlegt og dýrt úrræði
Bent er á að fyrri aðgerðir af þessum toga hafi allar sýnt sig í að vera „ólöglegar, ill- og jafnvel óframkvæmanlegar og dýrar" þegar á reyndi. Loks er minnt á að fjögur þeirra fimm Evrópusambandsríkja sem standi að samningnum hafi lýst áhyggjum af stöðu mannréttindamála í Rúanda á vettvangi Sameinuðu þjóðanna bara í janúar á þessu ári og spurt: Hvað hefur breyst?
Mótbárur og varnaðarorð samtakanna 47 breyta því ekki að samningurinn hefur verið kynntur sem tímamótasamningur, lausn á heilmiklum vanda, sem ætti að gleðja og gagnast öllum, þar á meðal flóttafólkinu sem þarna er verið að véla um.
Spegillinn bauð Önnu Lúðvíksdóttur framkvæmdastjóra Íslandsdeildar Amnesty International í viðtal og spurði hvað það væri helst sem samtökunum hugnaðist ekki við þessa útvistun Evrópuríkjanna á hælisleitendum og örlögum þeirra til Rúanda. Hlusta má á lengri útgáfu viðtalsins í og umfjöllunarinnar í spilaranum ofarlega í þessari færslu.