Sendiráð Austurríkis og Hollands í Kyiv, höfuðborg Úkraínu, urðu fyrir tjóni í árás Rússa í gær.
Kyiv Independent segir að drónar hafi hrapað nærri sendiráðunum og skemmt bíla, varðhlið og þá brotnuðu rúður einnig í byggingunum. Ekki liggur fyrir hvort drónunum hafi verið beint að sendiráðunum eða hvort þeir hafi verið skotnir niður af loftvarnarkerfi.
Hollenska sendiráðið er norður af miðborg Kyiv en austurríska sendiráðið er í Shevchenkivskyi hverfi. Dómkirkja Heilags Volodomyrs er í sama hverfi og tjón varð á loftlistum kirkjunnar í árásinni. Árásirnar á borgina stóðu yfir í um klukkustund og að minnsta kosti einn var drepinn og fimm særðust í árásunum á borgina í gær.
Utanríkisráðherra Svíþjóðar, Maria Malmer Stenergard, greindi frá því í gær að hún ætlaði að kalla rússneska sendiherrann á fund sinn eftir að árás var gerð nærri sænska sendiráðinu í Kyiv.